154. löggjafarþing — 66. fundur,  6. feb. 2024.

mannanöfn.

22. mál
[15:57]
Horfa

Flm. (Guðbrandur Einarsson) (V) (andsvar):

Forseti. Ég þakka fyrir ræðuna sem hér var flutt. Þó að ég sé ekki sammála henni þá hafði ég gaman af henni. Ég leyfði mér hér í andsvari áðan að vitna í orð manns sem heitir Eiríkur Rögnvaldsson og las þau hér uppi í pontu en þar benti hann á að þetta gæti farið í bága við stjórnarskrá; það voru ekki mín orð í því samhengi.

Mig langar aðeins, af því að hv. þingmanni verður tíðrætt um íslenska málhefð, að geta þess sem ég nefndi hér í framsögu minni. Það er verið að leyfa nafn sem er skrifað Ullr — ég gæti kannski ímyndað mér að þetta hefði passað fyrir 200 árum eða 300 árum en ég sé þetta ekki ganga upp samkvæmt íslenskri málhefð — en ekki var leyft að heita Heiðr. Þetta er nákvæmlega eins að uppbyggingu, annað leyft en hitt er bannað. Við erum með kvennafn sem er Erykah — er það heimilað út frá íslenskri málhefð? Þetta er ekki íslenskt, ekki eins og við myndum skilja það. Hér er vísað í íslenska málhefð sem ég veit í raun og veru ekki hver er.

Ég er íhaldssamari en andskotinn hvað þetta varðar og hef gefið börnunum mínum íslensk nöfn og haldið á lofti nöfnum formæðra og forfeðra. En mér finnst frelsið vera miklu mikilvægara en það að ég ætli að leyfa mér að (Forseti hringir.) styðja það að einhver hópur úti í bæ stjórni því hvað börnin mín eiga að heita.