154. löggjafarþing — 66. fundur,  6. feb. 2024.

mannanöfn.

22. mál
[15:59]
Horfa

Eyjólfur Ármannsson (Flf) (andsvar):

Virðulegur forseti. Hv. þm. Guðbrandur Einarsson vitnaði til prófessors emeritus Eiríks Rögnvaldssonar, að hann teldi þetta brjóta í bága við stjórnarskrá, íslensk mannanafnalög, ef ég skil það rétt. Það má vel vera, það má vel vera að hann telji það. Það eru 400 þúsund einstaklingar á Íslandi. Það getur vel verið að einhverjar þúsundir telji að þetta brjóti í bága við íslenska stjórnarskrá. En það er bara ekki prófessors emeritus Eiríks Rögnvaldssonar að túlka stjórnarskrána. Hann tekur ekki ákvörðun um það hvað brýtur íslenska stjórnarskrá og hvað ekki. Það er Hæstiréttur Íslands sem gerir það. Ég veit sjálfur ekki hversu mörgum dómum ég er ósammála en ég ber virðingu fyrir ákvörðun Hæstaréttar Íslands, það er hann sem túlkar stjórnarskrá Íslands en ekki prófessor úti í bæ eða einhver annar. Menn geta haft skoðanir á því, en svo einfalt er það.

Og varðandi þessi nöfn sem hv. þingmaður talaði um — ef ég skildi hann rétt þá var mannanafnanefnd að leyfa þessi nöfn. Er það íþyngjandi? Ég get ekki séð að það sé íþyngjandi ef við horfum á orðalagið í frumvarpinu, að íslenskt málkerfi sé varið með neikvæðum íþyngjandi formerkjum, þegar þessi nöfn, Ullr og Heiðr, hafa verið leyfð. Það er ekki íþyngjandi að leyfa þau. Það getur verið að menn séu með frjálslyndari skoðanir í mannanafnanefnd en áður en ég virði það stjórnkerfi sem hefur verið sett upp með þessari blessuðu nefnd, að hún skoði nöfn sem eru óvenjuleg, hvort þau falli að íslensku málkerfi og séu ekki barni til ama. Svo einfalt er það.

Svo getur vel verið að það séu einhver rök í þessu. Ég hef ekki lesið úrskurði nefndarinnar. Ákvarðanir nefndarinnar eru rökstuddir úrskurðir og ef einhver er óánægður með þá má kæra þá áfram til héraðsdóms. Ég tek eftir mannréttindabaráttunni þar en ég get lofað ykkur því að hv. þm. Guðbrandi Einarssyni var frjálst að velja þau nöfn á börnin sín sem hann vildi. (Forseti hringir.) Mannanafnalög komu ekki í veg fyrir það. Ég hef ekki séð neina bannreglu þar enn þá.