154. löggjafarþing — 66. fundur,  6. feb. 2024.

mannanöfn.

22. mál
[16:02]
Horfa

Flm. (Guðbrandur Einarsson) (V) (andsvar):

Virðulegur forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir þetta. Ég er bara nokkuð glaður með að mannanafnanefnd skuli hafa leyft þessi nöfn af því að það voru foreldrar barnanna sem óskuðu eftir því að fá að láta börnin heita þessum nöfnum. En ég skil ekki samhengið á milli þess að leyfa eitt nafnið en banna hitt, en uppbygging nafnanna var alveg sú sama. Ég hef ekki verið að nefna eitthvað þarna sem er íþyngjandi. Ég vil frelsi. Ég óska eftir frelsi til að gefa börnunum mínum það nafn sem ég sjálfur kýs. Ég óska þess sama réttar fyrir aðra foreldra, að það sé ekki nefnd úti í bæ sem ákveður hvað börnin okkar eiga að heita samkvæmt einhverri málhefð sem, miðað við þau nöfn sem ég var að nefna hér, stenst engan veginn. Þetta er ekki málhefðin okkar eins og við þekkjum hana í dag, þetta gæti hafa verið þekkt einhvern tímann í fyrndinni. Við sjáum þetta bara vera að gerast. Eins og ég nefndi í ræðunni minni þá var það bannað hér á árum áður á Norðurlöndum að kenna sig við föður og móður. Það var verið að banna það. Og það var verið að banna okkur að taka upp ættarnöfn. Þeir sem voru búnir að því, þeir máttu halda þeim og börnin þeirra. En ég mátti ekki taka upp ættarnafn. Eins og hv. þingmaður nefndi hér í ræðu áðan þá eru það mörg sem vilja ekki kenna sig við föður eða móður, staða margra er slík. Þess vegna eigum við að virða frelsi fólks til að heita það sem það vill.