mannanöfn.
Virðulegur forseti. Kenninafn, að kenna sig við föður og móður, er ekki eigið nafn. Þú ert sonur föður þíns, þú ert sonur móður þinnar. Það hefur ekkert með nafnið þitt að gera. Þú hættir ekkert að vera dóttir móður þinnar eða dóttir föður þíns, þú ert það. Tækninni hefur ekki fleygt það mikið fram að þú komist hjá því að vera það, svo að það liggi fyrir. Það er eiginnafnið sem skiptir máli. Þú heitir ákveðnu nafni og svo ertu t.d. kenndur við ákveðinn stað. Ég get tekið norsku ættarnöfnin sem dæmi, þeir misstu kenninafnahefðina, að kenna sig við föður og móður. Ættarnöfnin eru eiginlega dregin af nafni bóndabæjarins. Það er Ødegård, eyðigarður — svarti dauði geisaði 1350, þá fór mikið í eyði þannig að það voru margir eyðigarðar, og þannig þróuðust ættarnöfnin. Þannig urðu norsk ættarnöfn til, þú ert frá ákveðnum stað. Landsliðsmaður í færeyska landsliðinu, eins og við sáum um daginn, var kenndur við einhverja götu, einhvern stað. Hann gat ekkert gert að því, hann kemur frá þessum stað, hann er kenndur við þennan stað. Hann heitir ekki því nafni, hann er þaðan. Ekki rugla saman eiginnafni og kenninafni, það er grundvallaratriði.
Og það að halda því fram að verið sé að hefta ákvörðun foreldra í því að gefa börnum sínum nafn — það er bara ekki þannig. Nefndin skoðar bara hvort þetta passi við íslenska málhefð, eigi hefð í íslensku máli, eignarfallsendingar, og sé barni ekki til ama. Millinöfnin skulu dregin af íslenskum orðstofni. Ég veit ekki hvort Heiðr er af íslenskum orðstofni, ég bara veit það ekki. Það getur verið að Ullr sé það, það þarf bara að lesa forsendur ákvörðunarinnar. Það er bara þess fólks sem er í nefndinni að skoða það. Það tekur þessa ákvörðun og þannig er það bara. Þau fá ákveðnar leiðbeiningar frá okkur, í lögum sem voru sett 1996, um það (Forseti hringir.) hvernig þau eigi að haga störfum sínum. Þannig er það og mér finnst það bara ágætiskerfi, ég segi alveg eins og er.