154. löggjafarþing — 66. fundur,  6. feb. 2024.

mótun heildstæðrar stefnu um áfengis- og vímuefnavarnir.

30. mál
[16:07]
Horfa

Flm. (Sigmar Guðmundsson) (V):

Frú forseti. Ég mæli fyrir tillögu til þingsályktunar um mótun heildstæðrar stefnu um áfengis- og vímuefnavarnir. Tillögutextinn hljóðar svo:

„Alþingi ályktar að fela heilbrigðisráðherra að móta heildstæða stefnu um áfengis- og vímuefnavarnir. Stefnan taki m.a. til forvarna, bráðafíknimóttöku, meðferðarúrræða, eftirfylgni meðferðar, endurhæfingar og skaðaminnkandi úrræða. Í henni skal gera tillögu að aðgerðaáætlun til umbóta á viðeigandi löggjöf.

Stefnan skal lögð fram eigi síðar en á vorþingi 2024 og gilda til ársins 2030.“

Ég er fyrsti flutningsmaður en með mér á þessari tillögu eru hv. þingmenn Guðbrandur Einarsson, Hanna Katrín Friðriksson, Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir og Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, sem sagt lagt fram af þingflokki Viðreisnar.

Ástæðan fyrir því að við erum að leggja fram þetta mál er, má segja, af tvennum toga. Annars vegar var í gildi stefna í samfélaginu í þessum málum og málaflokki á árunum 2013–2020. Hún rann út og síðan höfum við ekki verið að vinna eftir formlegri stefnu þegar kemur að þessum málum. Hin ástæðan er sú að vandinn sem við erum að eiga við sem samfélag í þessum málum er óskaplegur. Hann vex ár frá ári. Við erum að missa fjölda fólks, mjög mikið af ungu fólki, vegna þess að það er með fíknisjúkdóm og fær ekki viðeigandi hjálp eða meðferð.

Nú er það ekki þannig að við sem leggjum fram þessa tillögu séum svo bjartsýn að það sé hægt að laga ástandið með einni svona tillögu. En við teljum svo sannarlega að þetta gæti verið fyrsta skref í því að taka utan um vandann og vinna samkvæmt einhverju plani til lengri tíma. Við gerum þetta í ansi mörgum málum hér á Íslandi. Stjórnvöld móta sér stefnu í hinum ýmsu málum. Mig langar t.d. að nefna: Af hverju erum við með samgönguáætlun? Þar erum við að forgangsraða fjármunum. Við erum að reyna að fara vel með skattfé, við erum að tímasetja framkvæmdir og taka tillit til alls konar öryggismála og sjónarmiða sem endurspeglast í þeirri stefnu sem er síðan endurskoðuð reglulega.

Þegar við erum hins vegar með sjúkdóm sem fellir um 100 einstaklinga árlega hér á Íslandi, þetta eru tölur úr gagnagrunni SÁÁ, þá erum við ekki að vinna eftir neinni stefnu eða plani. Við erum vissulega að setja fjármuni í meðferðarstarf og við erum vissulega eitthvað að velta fyrir okkur forvörnum. Við fylgjumst með fjölmiðlum og reynum að bregðast við eftir bestu getu þegar dapurlegar fréttir berast af því að ungt fólk hafi jafnvel fallið vegna þessa sjúkdóms. En við erum ekki með neina áætlun. Við erum ekki með neina tímasetta áætlun um það hvernig við ætlum að taka á vandanum til lengri tíma. Við erum að vinna þetta allt of tilviljunarkennt. Við veitum fjármagn á ýmsa staði og vonumst til þess að ástandið batni mikið en þeir sem taka á móti þessu fjármagni og vinna í málaflokknum, og þá er ég kannski einkum og sér í lagi að hugsa um þá sem sinna meðferðarstarfi, benda allir á að það bæði vanti meira fjármagn og það vanti stefnu og plan til að vinna eftir.

Það sem við teljum að eigi að felast í þessari stefnu og vera í henni er að hluta til byggt á þeirri stefnu sem var í gildi fyrir 2020. Við erum að nefna hér til sögunnar forvarnir. Það skiptir gríðarlega miklu máli að forvarnastarf sé öflugt, bæði inni í skólum, það þarf að ná inn á heimilin. Það snýst um að samfélagið sé með eitthvert verklag, einhverja hugsun í því að reyna að greina hverjir eru í áhættu, gætu mögulega farið að nota fíkniefni eða áfengi sér til skaða, koma með einhverja snemmtæka íhlutun þar. Við áttum okkur á því að öflugar og góðar forvarnir, þótt ég ætli ekki að þykjast vera sérfræðingur í þeim, hafa gert kraftaverk í íslensku samfélagi. Mig langar einkum og sér í lagi að nefna þann árangur sem við höfum náð í baráttunni gegn reykingum. En þetta er flóknari vandi því þetta er sjúkdómur, fíknisjúkdómur sem inniber það að þeir sem eru veikir hafa ekki sömu getu í heilanum til að bregðast við ákveðnu áreiti eins og annað fólk hefur sem er ekki með þennan sjúkdóm. En forvarnir skipta mjög miklu máli og stefnan á auðvitað að taka mið af því.

Við nefnum hér líka bráðafíknimóttöku, það verði skoðað hvernig hægt væri að fara af stað með svoleiðis úrræði. Við erum með nokkra aðila sem sinna meðferðarstarfi hér á Íslandi. Við getum nefnt SÁÁ, við getum nefnt Hlaðgerðarkot og Krýsuvík. SÁÁ rekur sjúkrahúsið Vog, tekur á móti fólki þar sem oft er í tíu daga, jafnvel lengur, fer síðan mögulega í eftirmeðferð á Vík sem er mánuður eða eftir atvikum á Hlaðgerðarkot sem býður upp á þriggja mánaða meðferð eða Krýsuvík sem býður upp á sex mánaða meðferð. Vandinn er hins vegar sá að biðlistarnir eru svo langir. Ef það er einhvers staðar þörf á því að ná að mæta fólki þar sem það er statt á hverjum tíma þá er það þegar við erum að slást við þennan sjúkdóm. Bráðafíknimóttaka gæti mögulega verið afdrep fyrir þá sem þurfa mikla hjálp en það er kannski ekki akkúrat pláss í lengri meðferðum þá stundina.

Þetta skiptir mjög miklu máli vegna þess, eins og ég er oft að benda á, að þetta er svo flókinn og margslunginn sjúkdómur. Menn geta tekið þá ákvörðun að hætta að drekka eða nota eiturlyf af því að það er bara einhvern veginn þannig tímapunktur í þeirra lífi. Það þýðir hins vegar ekki að sú ákvörðun fylgi endilega viðkomandi í lengri tíma. Ég tala oft um þetta sem ákveðinn meðferðarglugga. Það getur verið hægt að mæta fólki og koma því í meðferð á tilteknu tímabili en ef biðin er of löng þá fer fólk kannski að drekka eða nota aftur og hringrásin hefst aftur hjá því og því miður höfum við mörg dæmi um það hérna á Íslandi, allt of mörg, að fólk er að deyja á meðan það bíður á biðlista eftir því að fá hjálp.

Þetta er heilbrigðisvandi. Heilbrigðiskerfið á að taka utan um fólk og við eigum ekki að láta það vera þannig, hvort sem það er þessi sjúkdómur eða önnur veikindi, að fólk deyi á meðan það er að bíða mánuðum saman eftir sjálfsagðri heilbrigðisþjónustu, sem er ekkert annað en bara mannréttindi okkar allra að standi til boða þegar við þurfum á að halda.

Ég átta mig á því að það er auðvelt að tala svona en örugglega erfiðara í að komast. Þetta er ótrúlega víðtækur vandi. Það eru tugþúsundir Íslendinga sem hafa þurft að leita sér hjálpar vegna þessa sjúkdóms. Ég átta mig ekki á því hversu mörg meðferðarúrræðin eða meðferðarrýmin þyrftu að vera til að anna allri eftirspurn en þau þurfa a.m.k. að vera miklu fleiri heldur en í dag. Og þá kem ég aftur að þessu sem ég nefndi. Við getum aldrei eytt þessum vanda eða þessum sjúkdómi og afleiðingum hans úr íslensku samfélagi en okkur ber rík skylda til þess að reyna að lágmarka skaðann.

Síðan snýst þetta líka svolítið um eftirfylgni. Þessi sjúkdómur er svo erfiður við að eiga og heilastarfsemin í fólki er ekkert alltaf endilega upp á tíu þegar það fer í meðferð og getur verið lengi að jafna sig og það er alls konar áreiti þegar úr meðferð er komið, sem getur leitt til þess að sjúkdómurinn taki sig upp. Þá verðum við auðvitað að vera með einhverja góða eftirfylgni til staðar. Ég átta mig alveg á því að það er boðið upp á eftirfylgni t.d. á göngudeild hjá SÁÁ og fleiri úrræði eru í boði. En við þurfum að gera einfaldlega miklu betur. Það þarf líka að taka tillit til þess að í sumum tilfellum þarf fólk sem er búið að vera svona veikt, hefur jafnvel verið að drekka og nota vímuefni árum saman, á hreinni og klárri endurhæfingu að halda og við þurfum að hafa rými fyrir það í þessari stefnu okkar. Við nefnum hér sömuleiðis að við hljótum að leita allra leiða til að minnka skaðann og þá koma öll þessi skaðaminnkandi úrræði, sem talsvert hafa verið rædd í samfélaginu, og hljóta þá að falla undir þá vinnu að vera partur af svona stefnu.

Þetta er sem sagt einhvers konar viðleitni til þess að fá okkur saman í það að viðurkenna að þessi vandi sem er þarna úti er óskaplega mikill, fórnarkostnaðurinn er yfirgengilega hár og mikill. Við verðum, af því við erum öll velviljuð þegar kemur að þessum sjúkdómi og við viljum öll gera betur, að taka þennan vilja og breyta honum í verk. Það að hafa stefnu í gildi í málaflokknum hlýtur að vera einhvers konar grunnforsenda.

Ég veit að það er einhver vinna í gangi í ráðuneytinu, hvort það sé nákvæmlega það sem muni skila sér í stefnu til lengri tíma veit ég ekki alveg enn þá en ég vona svo sannarlega að það sé. Ég hef átt samtöl um þetta við heilbrigðisráðherra og veit að hann er, eins og við öll held ég, fullur vilja til að gera betur. En mig langar að nefna bara sem dæmi að við sjáum frétt í fjölmiðlum í dag af því að 18 ára drengur var að látast fyrir fáeinum dögum í íbúð. Það er ekki í fyrsta skipti sem ung manneskja deyr í þessari sömu íbúð við sambærilegar aðstæður. Ég ætla ekki að fara ofan í einhver smáatriði um þetta en þarna er alveg ótrúleg sorg, það er ótrúlega mikil reiði, vanmáttur sem jafnvel lýsir sér þannig að fólki finnst eins og að samfélagið hafi mögulega brugðist með einhverjum hætti. Auðvitað er ekki hægt að bjarga öllum, ég geri mér enga von til þess. En þegar við erum að missa svona ungt fólk þá hljótum við að reyna að standa okkur betur og til þess er þessi tillaga lögð fram, til þess að við getum einbeitt okkur að því.

Mig langar líka að nefna í þessu samhengi að við erum voðalega duglegir í því, alþingismenn, kannski eðlilega, að hugsa í fjárlagaárum eða kjörtímabilum, og þegar við erum að hugsa um ríkisútgjöldin þá sjáum við tölurnar á blaðinu í excel-skjalinu. Það er svona mikið sem fer í þetta. Það getur hins vegar verið miklu flóknara að reikna út sparnað af einhverjum aðgerðum vegna þess að það er ekki endilega tala sem við höfum í hendi þegar við erum að taka ákvörðunina heldur mögulega eitthvað sem við sjáum betur þegar tíminn líður. Ímyndum okkur í þessu samhengi tvo einstaklinga, jafn gamla. Annar einstaklingurinn er ekki með þennan sjúkdóm, hann fer í nám, hann nýtir skólakerfið eins og við vonumst til að sem flestir geti gert og aflar sér góðrar menntunar. Hann fer í framhaldsnám, hann fer og finnur sér atvinnu við hæfi, fer að búa til verðmæti fyrir samfélagið, greiðir skatta og skyldur alla ævi og er fullfær um að vera partur af fjölskyldu sem veitir börnum sínum öryggi og eðlilegt uppeldi. Hinn einstaklingurinn gæti verið einhver sem er með fíknisjúkdóm, sem flosnar upp úr skóla ungur, fer ekki í langskólanám, lendir í afbrotum vegna þess að það er verið að fjármagna fíkn, er jafnvel inn og út úr fangelsum, stundar ekki atvinnu nema mjög stopult, þiggur atvinnuleysisbætur þegar á þarf að halda og jafnvel aðra velferðarþjónustu og velferðarhjálp. Með því að vera inn og út úr fangelsum er viðkomandi að búa til kostnað í löggæslukerfinu, búa til kostnað hjá ákæruvaldi, dómsvaldi og í fangelsiskerfinu. Hugsum okkur þessa tvo einstaklinga. Nú veit ég að við eigum ekki bara að hugsa um krónur og aura en hugsum samt um verðmætin sem felast í því að taka seinni einstaklinginn sem ég er að lýsa, fækka slíkum dæmum og fjölga hinum dæmunum, fyrra dæminu. Annar aðilinn er að búa til efnisleg og óefnisleg verðmæti fyrir samfélagið á meðan hinn er fárveikur og fær mögulega ekki hjálp og það er gríðarlega mikill kostnaður, samfélagslegur kostnaður sem fylgir slíkum veikindum. Og þá er ég ekki með inni í þessu allan sálræna kostnaðinn og álagið sem þetta hefur á fjölskyldu viðkomandi því að það er nefnilega þannig með þennan sjúkdóm að hann eitrar ekki bara líf þess sem er með sjúkdóminn, þetta er algjört eitur fyrir alla þá sem eru í kringum viðkomandi. Við verðum að ná að hugsa um þetta einhvern veginn á þessum nótum, að þó að við sjáum ekki einhverjar sparnaðartölur á blaði við hliðina á mögulegum útgjöldum þá erum við, með því að gera betur í þessum málaflokki, að spara til lengri tíma alveg óheyrilega miklar fjárhæðir. Við þurfum bara pínulitla rökhugsun og fara aðeins í gegnum þetta í kollinum á okkur til þess að átta okkur á því.

Ég vona svo sannarlega að það verði vel tekið í þetta þingmál og að það fái afgreiðslu hér á þinginu. Eins og ég sagði áðan hef ég fundið fyrir því mjög sterkt að alþingismenn og fleiri eru velviljaðir því að gera betur. Ég er líka mjög meðvitaður um það að við upplifum öll mikið ráðaleysi og jafnvel ákveðna örvæntingu þegar við áttum okkur á því hvað það er margt fólk að deyja, hvað við erum að missa margt ungt fólk. (Forseti hringir.) En mig langar að minna okkur á það að lokum að t.d. þessi 18 ára drengur sem var að látast átti sér draum og fjölskylda hans um að vera í samfélagi sem væri fullt af möguleikum en því miður er það þannig að hann er að deyja í samfélagi sem er hálfafskiptalaust gagnvart honum og öðrum í sambærilegum vanda.