mótun heildstæðrar stefnu um áfengis- og vímuefnavarnir.
Forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir að bregðast við spurningu minni. Nú þekki ég ekki nógu vel til, hvað er löglegt af þessu og svona. En ég hef alla vega heyrt að oxycontin eigi bara alls ekki að heimila utan skurðstofu. Við komumst af án oxycontins í áratugi og aldir. En það er spurning hvort lyf sem er komið inn á þennan hættulega markað, í lausasölu á götum úti og svona — hvort við eigum yfir höfuð að veita svigrúm fyrir slíkt. Nú veit ég ekki hvort fentanýl er heimilað lyf eða hvernig því er háttað. Nitazenes er annað — þetta eru nýjar tegundir af dópi sem við höfðum bara ekki heyrt af fyrr en á allra síðustu misserum og árum. Það er verið að flytja það inn með löglegum hætti. Er ekki nóg fyrir af deyfilyfjum og verkjastillandi lyfjum? Þurfum við að vera að bæta þessu við sem við sjáum síðan verða að hryllilegum faraldri? Í minni gömlu heimaborg, Los Angeles, í miðborginni þar, í Hollywood, er bara eins og draugabyggð af ráfandi fólki strax og klukkan verður sex á kvöldin. Það býr bara í pappakössum og teppum úti á götu og sníkir sér mat. Það fær framlög fyrir húsnæði og fæði en notar það allt í dópið og þetta er gersamlega stjórnlaust.
Ég man að í gamla daga, þegar verið var að glíma við alkóhólismann, eins og við þekktum hann þá, var gefið lyf eins og antabus. Mig langar að spyrja hv. þingmann: Eru slík lyf í notkun sem gera fólki bara hreinlega ekki kleift að setja áfengi inn fyrir sínar varir eða annað slíkt dóp? Og þarf ekki að fara í djúpa rannsókn á rótum fíknarinnar? Tengslum fíknarinnar við þunglyndi, það er talað um áföllin og allt þetta. En í þessari stefnumótun (Forseti hringir.) þurfum við ekki að kanna rætur fíknar og hvernig við gætum hugsanlega afkóðað það stóra leyndarmál?