mótun heildstæðrar stefnu um áfengis- og vímuefnavarnir.
Hæstv. forseti. Ég sé mig knúinn til að taka til máls um þetta góða mál hér sem lagt er fram af hv. þm. Sigmari Guðmundssyni. Mig langar að þakka þeim þingmönnum sem hafa tekið til máls hér í dag undir þessum lið, líka gaman að sjá nýja þingmenn koma sterka inn í þessa umræðu, hv. þingmenn Sigþrúði Ármann og Guðrúnu Sigríði Ágústsdóttur.
Ég þekki alveg fáránlega marga sem hafa lotið í lægra haldi fyrir þessum sjúkdómi. Ég er sjálfur haldinn honum og get ekki drukkið áfengi. Það er átakanlegt að fylgjast með lífshlaupi þeirra sem verða þessum vágesti að bráð, hvort sem það er áfengisneysla eða önnur vímuefnaneysla, og alveg hryllilegt hvað þetta böl hefur tekið frá okkur mikið af ótrúlega hæfileikaríku og snjöllu fólki.
Það er afskaplega ánægjulegt fyrir okkur sem erum á mínum aldri að sjá hversu miklum árangri við höfum engu að síður náð í baráttunni við unglingadrykkju. Ég á sjálfur fjóra krakka, sum þeirra komin á fullorðinsaldur, og það er alveg frábært að sjá að þau eru ekki að fara í gegnum sömu eldskírn og maður sjálfur fór í gegnum á sínum tíma á skiptistöðinni í Kópavogi, þar sem maður var „beisiklí“ drukkinn hverja einustu helgi frá því að maður var 15–16 ára gamall. Það var bara það sem maður gerði, það var það sem krakkar gerðu og þeir sem ekki drukku — ég man bara eftir einum úr skólanum mínum, Víghólaskóla í Kópavogi. Sá er reyndar sendiherra Íslands um þessar mundir erlendis, sem er gaman að nefna.
Þetta gegnsýrir okkar menningu hins vegar alveg rosalega og ég segi það sjálfur sem einhver sem hefur þurft að hætta áfengisneyslu að það er átak að vera í þessu daglega sambandi, eða segi ekki daglega, þessu venjulega samfélagi hérna og geta ekki tekið þátt í þessu sem er svo stór hluti af því sem vinirnir eru að gera, vera alltaf sá sem fer fyrstur heim, bara af því að ég er orðinn svo syfjaður, ég bara meika það ekki lengur. Aðrir eru á einhverjum efnum sem halda þeim gangandi lengur o.s.frv. Ég efast ekkert um að margir deila þessari reynslu, fyrir utan auðvitað allt sem hefur komið fram hérna sem tengist þessu; slysin, glæpirnir og mistök sem fólk gerir á sinni göngu í gegnum þetta líf sem tengist beint vímuefnaneyslu og áfengisneyslu og allir aðstandendurnir sem verða fyrir áhrifum af þessu. Það er líka kostnaður sem sjaldan er tekinn til greina eða reiknaður inn í þetta tjón. Þetta er samfélaginu alveg ofboðslega dýrt og þess vegna er svo gott að sjá þessa tillögu hér. Þó svo að við vitum auðvitað að þetta sé erfið barátta er ekki þar með sagt að við eigum ekki að hafa neina stefnu eða að við eigum ekki að taka utan um þá þekkingu sem við höfum og nota hana til að reyna að gera eitthvað gott með hana, reyna að bjarga einhverjum af þeim lífum sem annars þyrftu að fara í gegnum þessi svipugöng.
Ég er sammála hv. flutningsmanni að refsistefna er ekki svarið. Við höfum prófað hana. Við höfum prófað að banna áfengi og reyna að framfylgja því. Það gekk ekki. Við reyndum að banna bjórinn. Ég er ekki viss um að það hafi skilað okkur betra samfélagi. Við þurfum að vera með einhvers konar velviljaða og umfaðmandi stefnu sem styður fólk sem á við þennan sjúkdóm að etja. Það er gríðarlega margt sem er vitað um hann og viðbrögð við honum. Hér hefur verið nefnt skjal frá Alþjóðaheilbrigðismálastofnuninni. Það eru fjöldamargar stofnanir sem hafa gert viðamiklar skýrslur um þetta og til eru endalausar akademískar rannsóknir. Við eigum að nota okkur þær. Við eigum að móta okkur stefnu. Þetta er risavaxið mál og það er gríðarlega gott að taka þessa umræðu hér og ég hlakka til að heyra þær ræður sem enn eru á dagskránni.