154. löggjafarþing — 66. fundur,  6. feb. 2024.

mótun heildstæðrar stefnu um áfengis- og vímuefnavarnir.

30. mál
[17:09]
Horfa

Flm. (Sigmar Guðmundsson) (V):

Herra forseti. Ég ætlaði bara að bregðast aðeins við mörgu af því sem lagt hefur verið til í umræðu um þetta mál og þakka kærlega fyrir viðtökurnar hér í salnum. Það er gott að heyra það og fá það staðfest, sem ég þó vissi, að við erum öll mjög velviljuð því að gera miklu betur í þessum málaflokki.

Það er líka áhugavert að umræðan verður á köflum svolítið persónuleg. Við erum aðstandendur, við erum alkóhólistar sjálf eða þekkjum einhverjar sögur sem við getum miðlað hér í ræðustólnum til að við glöggvum okkur öll betur á vandanum. Það hefur komið vel fram hve hið samfélagslega tjón sem fylgir þessum sjúkdómi er mikið og það er nauðsynlegt að lágmarka það.

Mig langar aðeins að nefna, af því að ég komst ekki inn á það í flutningsræðu minni, eitt í þessu sem var nefnt hér áðan, þ.e. að til eru dæmi um að fólk þurfi að fara oftar en einu sinni, oftar en tvisvar, oftar en tíu sinnum og oftar en tuttugu sinnum í meðferð. Þá er oft auðvelt hjá sumum að draga þá ályktun að þetta meðferðarstarf virki ekki neitt. Sá sem þarf að fara svona oft í meðferð — það er eitthvað að meðferðinni. Þetta er hins vegar krónískur sjúkdómur og krónískir sjúkdómar eru þess eðlis að þeir geta tekið sig upp aftur og aftur. Hv. þm. Tómas Tómasson kom ágætlega inn á þetta hér áðan. Fólk getur farið í margar meðferðir og síðan allt í einu náð árangri í þeirri tuttugustu. Ég held því að lykilatriðið sé að við eigum aldrei að gefast upp á fólki. Ég þekki mörg dæmi um fólk sem hefur farið aftur og aftur en aldrei náð neinum sérstökum árangri en allt í einu gerist eitthvað. Það nær bata og verður fyrir vikið nýtur þjóðfélagsþegn. Þetta snýst bara um það að gefast ekki upp á veiku fólki, jafnvel þótt tilraunirnar séu margar. En þetta er ofsalega flókinn sjúkdómur og það er líka hárrétt, sem hv. þm. Tómas Tómasson kom inn á hér áðan, og fleiri nefndu það líka, að eftirfylgnin skiptir gríðarlega miklu máli einmitt vegna þess að þetta er krónískur sjúkdómur. Þú getur verið í bata í mörg ár. Svo verður eitthvert áfall í þínu lífi eða miklar breytingar eða annað og þá kikkar sjúkdómurinn inn og hringekjan fer af stað aftur. Fólk fellur og veikist á nýjan leik. Þetta er bara flókið. Þetta er bara eins og með marga aðra geðsjúkdóma. Þetta er svo margslungið, það er ekki þannig að til sé eitthvert eitt módel af því sem hægt er að gera sem henti öllum. Úrræðin verða að vera margvísleg og þau verða umfram allt að vera þannig að þau geti mætt fólki á þeim stað sem það er, alveg óháð því hvort menn eru að koma í fyrsta sinn í meðferð eða í það fimmtugasta. Þetta er einn angi af því sem ég vildi nefna.

Ég vildi líka leggja áherslu á það að þegar við erum að tala um að móta einhverja stefnu í þessum málaflokki til lengri tíma þá er nauðsynlegt að við komum öll svolítið fordómalaus að því borði. Ég hef t.d. alltaf haft ákveðnar áhyggjur af því í gegnum tíðina að við séum of mikið að velta fyrir okkur hlutum eins og verðlagningu á áfengi eða aðgengi að áfengi og að það verði einhvers konar skálkaskjól: Já, við erum að gera helling. En ég upplifi það einhvern veginn þannig að þeir sem veikastir eru kaupa vodkað sitt eða dópið sitt alveg óháð því hvað það kostar og þeir finna leið til að verða sér úti um það hvort sem það er til í búð eða ekki. En þessi umræða með aðgengið og verðið og allt hlýtur auðvitað samt, eins og ég nefndi hér í andsvari við hv. þm. Líneik Önnu Sævarsdóttur, að vera umhugsunarefni fyrir okkur sem viljum vera fordómalaus í þessu, hvort það sé tæki og tól sem virki vel í fyrirbyggjandi aðgerðum. Að sama skapi verða þeir sem hafa miklar efasemdir um skaðaminnkandi úrræði, t.d. afglæpavæðingu neysluskammta eða jafnvel hreina lögleiðingu — getur það verið tæki sem minnkar skaða samfélagsins af þessum sjúkdómi? Mér finnst að við þurfum líka að vera fordómalaus þarna.

Ég nefndi það hér áðan í ræðu að auðvitað er það þannig að glæpaheimurinn sem fylgir fíkniefnum er óheyrilega stór, það er óheyrileg velta. Það er verið að selja efni sem kosta í raun ekkert sérstaklega mikið í framleiðslu. En af því að þetta fer í gegnum eitthvert neðanjarðarhagkerfi, er falið á milli landamæra og annað, þá er þetta orðið að mjög verðmætri vöru þegar það er komið á leiðarenda. Í þessu skjóli þrífst alls konar glæpastarfsemi, ofbeldi, hótanir, mansal og annað, og við verðum auðvitað að velta því fyrir okkur þegar við erum að móta stefnu til framtíðar. Getur verið að við þurfum að taka alvarlega umræðu um þetta og sjá hvort einhverjar breytingar þarna geti skilað okkur betra samfélagi? Ég vildi því kannski leggja áherslu á það að við séum bara fordómalaus í allar áttir í þessu.

Síðan langaði mig að nefna annað. Einstaklingar komu að máli við mig og voru að benda á hvað gert er í Danmörku. Þegar ungt fólk sem er komið á einhverja refilstigu — er farið út í afbrot, jafnvel farið að nota fíkniefni og alls konar viðvörunarbjöllur klingja í kringum það og er kannski leitt fyrir dómara. Þá hefur dómarinn það úrræði, ef viðkomandi einstaklingur, í samráði við sérfræðinga í kerfinu, býr til eitthvert plan um að koma sér á beinu brautinni aftur, t.d. með námi, með því að fara í meðferð, með því að gera alls konar uppbyggilega hluti, að gefa afslátt af refsingunni. Þá er fylgst með því hvort úrræðið skilar sér á endanum í því að einstaklingurinn verður á betri stað en yrði kannski í fangelsi. Það eru alls konar leiðir sem hægt er að skoða sem gætu verið partur af þessari vinnu.

Mér fannst líka mjög áhugavert að heyra hér, hjá hv. þm. Sigþrúði Ármann, þessa sögu af lækni sem er að láta lyf fylgja án þess að það sé endilega nákvæm skoðun á því hvort það lyf hafi akkúrat átt að vera það rétta en reyndin varð síðan sú að hægt var að fá út sömu niðurstöðu með miklu vægari úrræðum. Læknar eru náttúrlega með mikla þekkingu og allt það en þeir eru ekkert endilega, bara eins og annað fólk, allir með einhverja sérþekkingu á því sem snýr að alkóhólisma. Þetta þekki ég sjálfur. Ég hef margoft tekið það fram hjá læknum, þegar verið er að segja að ég þurfi að taka verkjalyf við einhverju, að ég geti ekki tekið þetta eða hitt verkjalyfið og læknirinn bara áttar sig ekkert á því út af hverju það er. Það þarf líka, eins einkennilega og það hljómar, að auka fræðslu í heilbrigðiskerfinu gagnvart þessum sjúkdómi.

Hún er alltaf svolítið áhugaverð umræðan um það hvað veldur þessum sjúkdómi eins og velt var upp hér í andsvari. Hvernig getum við ráðist að rót vandans? Það er auðvitað eitthvað sem við þurfum líka að hafa í huga. Eru það áföll, eru það erfðir? Er það hið félagslega umhverfi sem við ölumst upp við? Þekkingarleitin þarf að halda áfram þarna. Það breytir hins vegar ekki þeirri staðreynd að vandinn sem við erum með í fanginu núna er sá að það eru þúsundir einstaklinga þarna úti sem eru fárveikir af þessum sjúkdómi. Heilinn í þeim er ekkert sérstaklega mikið að velta því fyrir sér hvort vímugjafinn sé fenginn í gegnum áskrift hjá lækni eða hvort hann komi með einhverri ólöglegri leið í gegnum neðanjarðarhagkerfi til landsins eða hvort hann er löglega seldur í ÁTVR. Þarna þurfum við ákveðið fordómaleysi líka, við þurfum að átta okkur á því að heilinn í veiku fólki virkar eins gagnvart öllum þessum vímugjöfum. Það verður auðvitað að vera eitthvert pínulítið samræmi í þessu, þegar við erum að tala um þetta sem heilbrigðisvanda; að við séum ekki alltaf með það í huga líka að það þurfi að vera einhver refsielement í þessu. Auðvitað á allt fólk að vera ábyrgt gjörða sinna og ef fólk fremur afbrot á það að sjálfsögðu að svara til saka fyrir þau. En veikir fíklar eru oft bara mjög veikt fólk sem þarf miklu frekar aðstoð en refsingu og það er eitt af því sem við gætum svo sannarlega tekið inn í þessa umræðu. Það var nefnt hérna með fangelsiskerfið okkar. Við vitum það alveg að fangelsin eru full af fólki sem glímir við fíknivanda. Þar er fólk inni í lengri tíma. Einhver virkni í einhvers konar bata- og meðferðarúrræðum þar gæti gert það að verkum að þessi hringrás rofni sem alltaf er verið að lýsa. Þeir sem fara inn í fangelsin eru svo gjarnir á að lenda þar alltaf aftur og aftur.

Það er svo ótrúlega margt sem við getum skoðað til að laga ástandið í samfélaginu, bæði sem snýr að því að taka á bráðavandanum og taka utan um veika fólkið, líka það sem snýr að því að laga regluverkið okkar þannig að við séum mögulega að lágmarka skaðann, viðurkenna að við getum ekki bjargað öllum, taka utan um það að þetta þarf að verða heilbrigðisvandi en ekki endilega vandi refsivörslukerfisins. En umfram allt finnst mér að við þurfum að vera svolítið fordómalaus gagnvart öllu því sem til álita kemur þegar verið er að móta stefnu af þessu tagi. Ég ætla bara að þakka aftur fyrir góðar viðtökur við þessu þingmáli.