154. löggjafarþing — 66. fundur,  6. feb. 2024.

barnalög og tæknifrjóvgun og notkun kynfrumna og fósturvísa manna til stofnfrumurannsókna.

78. mál
[17:40]
Horfa

Flm. (Hildur Sverrisdóttir) (S):

Herra forseti. Ég hef, á meðan ég hef setið hér á þingi, lagt fram nokkur mál sem hafa þann einfalda tilgang að vilja aðstoða fólk við að eignast börn. Það er ekki öllum gefið og reynist ýmsum erfitt og þá þarf fólk að leita á náðir tækninnar. Sem betur fer erum við svo lánsöm að eiga þá tækni til en það frumvarp sem ég mæli hér fyrir lýtur að því að gera reglurammann eilítið frjálsari með það fyrir augum að hjálpa fólki í þeim tilgangi í staðinn fyrir að hafa hann óþarflega stífan þegar kannski er ekki mikil ástæða til.

Ég mæli fyrir þessu tiltekna máli í þriðja sinn hér á þingi en þó er það breytt þar sem það innihélt tillögu í hin tvö skiptin um breytingu á þeim lögum sem hér um ræðir, um að felldar yrðu úr lögunum það sem ég hef kallað frekar ógeðfelldar reglur um að þeim fósturvísum sem fólk ætti, eftir tilraunar sínar í tæknifrjóvgunum, yrði umsvifalaust að eyða án undantekninga ef það fólk skildi að skiptum eða ef andlát bæri að garði. Á síðasta þingi ákvað heilbrigðisráðherra að setja þann anga málsins í stjórnarfrumvarp og var það samþykkt hér í vor þannig að þessi ógeðfellda regla sem ég vildi fella út í mínum fyrri tveimur frumvörpum hefur nú verið felld úr lögunum. Ég var sjálf ekki hér á þingi þegar heilbrigðisráðherra kom með þessa breytingu, og hún var samþykkt af þingheimi, þar sem ég var þá sjálf í fæðingarorlofi verandi ein af þeim heppnu sem auðnaðist fyrir rest, eftir nokkuð margar tilraunir með tæknifrjóvgun, að eignast barn. Ég var ekki hér þá og ætla því að fá að nota tækifærið og þakka hæstv. ráðherra með formlegum hætti kærlega fyrir að hafa tekið á þessari reglu og fellt út úr lögunum.

Eftir standa þá, í því frumvarpi sem ég mæli hér fyrir í þriðja sinn, nokkur atriði sem ég tel rétt að við gerum breytingu á. Það hefur að gera með það að auka frelsi og sjálfsákvörðunarrétt fólks í þessum aðstæðum með því að aftengja skyldu til sambúðar fyrir það fólk sem hyggst leita sér aðstoðar. Mér finnst rétt að hið opinbera þurfi ekki að hafa afskipti af því hvort það fólk sé í sambúð eða gift. Við vitum að úti í lífinu, úti í samfélaginu, á börum bæjarins með öllu tilheyrandi, er hið opinbera blessunarlega ekki að skipta sér af því hverjir eignast barn saman. Ég sé því enga ástæðu til þess að hið opinbera þurfi að skipta sér af því að ef þú þurfir aðstoð við að eignast barn þá verðir þú að vera í sambúð.

Ég myndi segja að þetta sé kannski ekki jafn hrópandi óréttlátt eins og sú breyting sem ég hef áður mælt fyrir og heilbrigðisráðherra tók síðan til sín og felldi út úr lögunum. En þetta er samt atriði sem við í nútímasamfélagi, sem þróast í alls konar áttir, eigum bara að taka til okkar. Við verðum bara að geta treyst fólki og verið með því í liði hvernig svo sem það kýs að haga sínu fjölskyldumynstri. Það er vel hægt að gera það án þess að hagsmunum eða lífi viðkomandi barns sé einhvern veginn teflt í hættu eða tvísýnu eða að réttindi þess séu einhvern veginn á reiki. Það er vel hægt að búa svo um hnúta og það er að sjálfsögðu mjög skýrt í frumvarpinu að ef fólk sem er ekki í sambúð eða hjónabandi vill eignast barn saman þá verður að sjálfsögðu að votta það allt saman með upplýstu samþykki og kvitta og stimpla í bak og fyrir af til þess bærum yfirvöldum. Þar undir eru réttindi barns sem skipta ofboðslega miklu máli.

Ég átta mig alveg á því að þessi nálgun mín hefur verið gagnrýnd og hefur verið mætt með ákveðnum áhyggjum varðandi réttindi viðkomandi barna sem fæðast í slíkum aðstæðum. Ég geri alls ekki lítið úr þeirri gagnrýni en ég leyfi mér samt að segja, forseti, að það kom mér ekkert á óvart. Það er nú þannig að í þau 30 ár sem þessi löggjöf hefur verið að þróast hefur hún bæði breyst ofboðslega mikið og henni hafa alltaf fylgt mjög miklar áhyggjur. Eins og við þekkjum máttu samkynhneigðir lengi vel ekki fara í tæknifrjóvgun, einstæðar mæður ekki heldur og systir viðkomandi tilvonandi móður mátti ekki gefa henni eggið sitt; öll þessi atriði höfðu það eitt sameiginlegt að fólk hafði áhyggjur af hagsmunum barnanna í þessum aðstæðum, að það þyrfti að banna þetta til þess að hlífa þeim við þessum aðstæðum. Svo bara þróast lífið og það breytist og viðmiðin okkar breytast og við sjáum að við þurftum kannski ekki að vera svona hrædd. Ég ætla almennt í lífinu, varðandi þennan málaflokk ekki síst, að trúa á það að vel sé hægt að hugsa í lausnum og passa upp á það sem raunverulega skiptir máli. En að öðru leyti vil ég gefa fólki frelsi og traust til þess að bera ábyrgð á sínu lífi eins og það kýs helst.

Það er annar þáttur í þessu frumvarpi sem hefur enn ekki verið tekinn út úr núverandi löggjöf og mér þykir það mjög bagalegt og tel mjög mikilvægt að breyta því. Í núgildandi löggjöf er mjög skýrt blátt bann við því að gefa fósturvísa. Fyrir mér er það algerlega óskiljanlegt bann. Ég hef reynt að lesa mig í gegnum alla löggjöfina og reynt að finna rökstuðning fyrir því af hverju þetta bann er eins og það er og ég get með sanni sagt að ég finn ekki þau rök. Þegar verið er að búa til lög er bara ýmislegt sem einhvern veginn endar þar og fólk veit endilega ekkert alltaf af hverju. Ég hef áhyggjur af því að við séum til í að láta það þá bara standa af því að það sé búið að standa þarna svo lengi og engin ástæða sé til að breyta því. Ég er því algerlega ósammála. Ég get ekki séð ein einustu rök fyrir því að annars vegar megi gefa sæði og hins vegar egg en ekki megi gefa sæði og egg sem þegar er orðið að lífvænlegum fósturvísi. Ég bara endurtek að ef fyrir þessu væru einhver rök þá væri sjálfsagt að skoða þau en þau er ekki að finna í núverandi löggjöf. Þrátt fyrir að blessunarlega séu það ekki margir sem eru í þessari stöðu, að þurfa að fá lífvænlegan fósturvísi í staðinn fyrir eingöngu kynfrumur, annars vegar egg og hins vegar sæði, þá er það hins vegar þannig að fyrir það fólk sem er í þeirri stöðu er það dýrmætara en gull að fá aðstoð. Það er auðvitað algerlega ólíðandi, finnst mér, að við séum með löggjöf sem hamlar því tækifæri, þeim valkosti, fyrir það fólk og við getum ekki einu sinni sagt því af hverju. Mér finnst að löggjöf eigi ekki að vera þannig og tel einsýnt að það eigi að kippa þessu í liðinn. Í frumvarpinu er þetta mjög einföld breyting. Við breytum orðinu „óheimil“ í „heimil“, það þarf ekki að vera flóknara en það. Ég ákvað aðeins að skoða þetta í löndunum í kringum okkur, hvaða hátt þau hafa á. Ég tók stikkprufu frá Danmörku, Bretlandi og Spáni og til að gera langa sögu stutta þá heimila öll þessi lönd að fósturvísar séu gefnir og í þeirri löggjöf er ekki einu sinni að finna eina einustu vangaveltu um að það sé eitthvað málum blandið. Þvert á móti. Þá má einnig geta þess að í þessum sömu löndum er heldur ekki ein einasta krafa um að fólk sé skráð í sambúð eða hjónaband ef það vill aðstoð við tæknifrjóvganir eins og ég hef reifað í máli mínu.

Herra forseti. Þetta frumvarp er svo sem ekkert efnismeira en þetta. Þetta er í grunninn, eins og ég segi, bara út frá þeirri hugmyndafræði að treysta fólki, að gefa því valkost á eigin forsendum út frá eigin sjálfsákvörðunarrétti. Við aðstoðum fólk og treystum því til að taka ákvarðanir fyrir sitt líf. Þetta frumvarp snýst um það. Ég vona að ég þurfi ekki að flytja það í fjórða sinn en ef ég þarf að flytja það í fjórða sinn þá bara geri ég það.