154. löggjafarþing — 66. fundur,  6. feb. 2024.

barnalög og tæknifrjóvgun og notkun kynfrumna og fósturvísa manna til stofnfrumurannsókna.

78. mál
[17:53]
Horfa

Guðrún Sigríður Ágústsdóttir (S):

Virðulegur forseti. Ég held að það sé fátt eins sárt og að standa frammi fyrir því að von um að eignast barn sé pínu langsótt, að maður þurfi jafnvel að leita leiða til þess að það sé möguleiki. Svo getur margt gerst á lífsins leið sem getur flækt þetta ferli hjá þeim sem eru komnir á þann stað að vera jafnvel komnir í tæknifrjóvgun eða meðferðir sem muni hjálpa þeim við svoleiðis framkvæmdir.

Ég fagna þessu flotta frumvarpi, það er löngu tímabært að leysa úr þessum frumskógi af flækjustigi. Og svo langar mig að nota spariorð hæstv. forseta, þ.e. að gera þetta að manneskjulegra regluverki. Ég vona svo sannarlega að þverpólitísk samstaða náist um að þetta frumvarp fari í gegn.