154. löggjafarþing — 66. fundur,  6. feb. 2024.

barnalög og tæknifrjóvgun og notkun kynfrumna og fósturvísa manna til stofnfrumurannsókna.

78. mál
[17:58]
Horfa

Magnús Árni Skjöld Magnússon (Sf):

Hæstv. forseti. Já, það er kannski ekki miklu að bæta við ræður þeirra hv. þingmanna sem hafa talað hér í dag. Ræða hv. þm. Gísla Rafns Ólafssonar var ákaflega sterk, verð ég að segja. Það er hárrétt hjá honum að þegar endurflytja þarf góð mál sem þverpólitísk sátt er um hér á þingi aftur og aftur þá er eitthvað sem er ekki að virka hjá okkur.

Ég hef sjálfur orðið vitni að þeim sársauka sem er til staðar hjá þeim sem ekki hafa átt kost á því að eignast börn með hefðbundnum hætti, ef við getum kallað það það. Ég er svo lánsamur að eiga fjögur börn og það er auðvitað erfitt fyrir okkur sem erum í þeirri stöðu að átta okkur á því hversu djúpur þessi sársauki er. En ég hef engu að síður orðið vitni að því og ég get staðfest það að hann er það. Mér finnst því að samfélagið okkar, sem býr yfir tækni, kunnáttu og getu til að hjálpa fólki sem er í þeirri stöðu, eigi að gera það og eigi ekki að flækjast fyrir því eins og staðan er því miður í dag.

Það fína frumvarp sem hér er flutt er liður í því að koma til móts við það fólk og ég vona að það hljóti brautargengi að þessu sinni í gegnum þingið.