rannsóknasetur öryggis- og varnarmála.
Virðulegi forseti. Ég þakka hv. framsögumanni fyrir svörin. Ég held einmitt að það séu mikil tækifæri til að efna til talsvert meiri, opnari og fræðilegri umræðu, jafnvel með ólík viðfangsefni undir og ógnir sem við þurfum að fást við, í tengslum við slíkt setur, sem gæti þess vegna líka heitið bara rannsóknasetur friðar-, öryggis- og varnarmála ef við leggjum það allt saman í eitt. Umræðan hefur of mikið verið bundin við svona útvalinn hóp jafnvel sjálfskipaðra hauka eða sérfræðinga í þessum efnum og aðrir hafa kannski minna treyst sér í þá umræðu. Ég held að það sé mjög mikilvægt að ná að brjóta það upp og að ekki sé verið að véla um þessa hluti á einhverjum lokuðum skrifstofum þar sem starfa þess vegna einn eða þrír einstaklingar sem eiga ekki mikil samskipti við okkur hin um hvað efst sé á baugi og slíkt.
Ég sé margt jákvætt við þetta mál og lýsi því hér. Tækifæri eru til þess, eins og kom fram hjá hv. framsögumanni, að efla samþættingu áætlana og leiða fólk saman þar. Ég vil kannski einnig spyrja hv. framsögumann hvað hann sjái fyrir sér um mögulega samstarfsaðila erlendis. Norðurlöndin voru sérstaklega nefnd en þau hafa einmitt verið í fararbroddi með okkur að tala fyrir friðsamlegum lausnum deilumála o.s.frv. Eru frekari hugmyndir um hvernig við sjáum fyrir okkur að geta þróast fræðilega og samstarfslega séð, og út fyrir landsteinana líka?