154. löggjafarþing — 66. fundur,  6. feb. 2024.

rannsóknasetur öryggis- og varnarmála.

86. mál
[18:22]
Horfa

Flm. (Njáll Trausti Friðbertsson) (S) (andsvar):

Herra forseti. Eins og kemur fram í greinargerðinni þá er það mikilvægt atriði að vinna með hugveitum erlendis. Það eru mjög sterkar hugveitur í þessum málum á Norðurlöndunum og víða í Evrópu almennt, í öllum löndum. Við erum kannski eitt fárra landa í Evrópu sem eru ekki með slíkar hugmyndir um akkúrat þessi mál. Ég held að sagan segi okkur það að okkar staðsetning í heiminum og svo margt, landfræðileg staða og hvernig heimspólitíkin er að þróast, landfræðileg stjórnmál — þetta fer bara stækkandi í okkar umhverfi og er eitthvað sem við verðum virkilega að halda þétt utan um og efla. Finnar, Norðmenn, Svíar, Danir; það eru alls staðar stórar hugveitur sem tengjast þessu. Þess vegna hef ég ekkert á móti því þó að friðar-, varnar- og öryggismálum verði bætt við, það er ekki málið, enda má ekki gleyma því að takmark Atlantshafsbandalagsins er að tryggja frið. Það er alltaf grunnatriðið, að tryggja stöðugleika og frið. Það er ekkert einfalt í heiminum í dag að tryggja frið. Við höfum rætt það í þingsal að lýðræðisríki heimsins eru 40–50 af 200, eða 70 í mesta lagi eins og einhver sagði — það er sagt að það séu ekki mikið fleiri en 40 alvörulýðræðisríki í heiminum. Þar sem maður hefur setið á fundum erlendis með háskólaprófessorum frá flottum, þekktum háskólum hefur verið bent á að það er bara ekkert sjálfsagt við þetta lýðræði og að viðhalda því. Það væru kannski 70 eða 80 ár þar sem væri eitthvað sem við gætum kallað nútímalýðræði. Það er ekkert eldra en það og það eru ekkert margir sem búa við það. Það er það sem við erum að reyna að verja og þannig eigum við að vinna.