154. löggjafarþing — 66. fundur,  6. feb. 2024.

rannsóknasetur öryggis- og varnarmála.

86. mál
[18:25]
Horfa

Eyjólfur Ármannsson (Flf) (andsvar):

Virðulegur forseti. Ég vil þakka flutningsmanni, hv. þm. Njáli Trausta Friðbertssyni, fyrir framsöguna. Hér er um áhugaverða tillögu að ræða um gerð samnings við Alþjóðamálastofnun Háskóla Íslands um sjálfstætt rannsóknasetur um öryggis- og varnarmál. Það kemur fram í greinargerðinni að virk þátttaka Íslendinga í víðtæku samstarfi norrænna samfélaga verði ekki tryggð án þess að stundaðar verði fræðilegar rannsóknir á þessu sviði í samvinnu við Norðurlöndin. Það kemur líka fram í greinargerðinni að á níunda áratug 20. aldar starfaði öryggismálanefnd á vegum forsætisráðuneytisins með fulltrúum þingflokka og þar hafi verið orðin til sérfræðiþekking. Svo var varnarmálaskrifstofa utanríkisráðuneytisins til á sínum tíma.

Spurningin er þessi: Hafa einhverjar rannsóknir verið stundaðar í háskólunum eða innan stjórnkerfisins á öryggis- og varnarmálum? Eru það kannski einstaka prófessorar eða hefur verið eitthvert skipulag á þessu? Veit hann hvernig staðan er? Það er mjög áhugavert líka að árið 2009 átti að kanna grundvöll fyrir því að setja á stofn sjálfstætt rannsóknasetur, svo 2011 átti að íhuga að framkvæma þessa tillögu en svo 2014 var ekki til nægur peningur, ekki taldar forsendu fyrir því, kannski vegna hrunsins. Það er rétt, sem kemur fram með þjóðaröryggisstefnuna 2016, að þar á að tryggja sérfræðiþekkinguna. Ég spyr: Er eitthvað í gangi til að tryggja þá sérfræðiþekkingu? Erum við að fara að stíga fyrstu skrefin? Ég get ekki séð að hún verði tryggð öðruvísi en með rannsóknum. Það þurfa að vera rannsóknir og þá í samstarfi við Norðurlöndin og aðrar NATO-þjóðir, okkar nánustu ríki, t.d. Bandaríkin sem sjá um að verja okkur með tvíhliða samningi. (Forseti hringir.) Það væri gott að heyra álit hv. þingmanns á þessu.