154. löggjafarþing — 66. fundur,  6. feb. 2024.

rannsóknasetur öryggis- og varnarmála.

86. mál
[18:29]
Horfa

Eyjólfur Ármannsson (Flf) (andsvar):

Virðulegur forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir svarið. Það er vissulega mikilvægt að vinna með hinum Norðurlöndunum og jafnvel Eystrasaltsríkjunum, vonandi horfum við líka til vesturs, til Kanada og Bandaríkjanna, það er einnig mjög mikilvægt, ekki síst Bandaríkjanna sem við erum með tvíhliða samning við og þá innan NATO. Það er vissulega rétt að það er mjög mikilvægt að við séum með einhvers konar rannsóknasetur á þessu mikilvæga sviði. Ein skilgreiningin á fullveldi er sú að geta varið fullveldið, fullvalda ríki sem hefur varnir til þess. Við erum herlaus þjóð hvað það varðar.

Varðandi alþjóðasamstarfið þá er bent hér á norrænu yfirlýsinguna, þar er þessi virka þátttaka greinilega mjög mikilvæg. Við megum ekki einangrast í norræna samstarfinu. Mér skilst að Svíþjóð sé alveg að verða fullgildur aðili að NATO og þá verða allar fimm Norðurlandaþjóðirnar, fullvalda Norðurlöndin, aðilar að NATO. Ég veit að þeir stefna á enn þá nánara samstarf, ég sá í fréttum í Skandinavíu að þeir ætluðu meira að segja að hafa sameiginlega búninga, herbúninga, og stefna að sameiginlegum innkaupum á hergögnum o.fl. Þetta eru náttúrlega framleiðendur hergagna eins og í Svíþjóð og í Noregi líka, Kongsberg-verksmiðjan í Noregi sem framleiðir meira að segja inn í F-35 herþoturnar.

Ég tek undir það líka að með þessari tillögu er stefnt að því að tryggja að í landinu sé fyrir hendi sérfræðiþekking sem kveðið er á um í 6. tölulið þjóðaröryggisstefnunnar og hérna er verið að framkvæma það. Mér finnst svolítið sérstakt að það þurfi að gera sérstaka tillögu um það. Jú, það á að gera samninginn en það virðist ekki hafa verið tryggt með neinum hætti að þessi þekking sé til. Veit hann til þess eða verður þessi samningur (Forseti hringir.) að koma til svo við getum tryggt þessa þekkingu í landinu varðandi þjóðaröryggisráð? Gerum við það ekki án þess að þessi samningur sé til staðar?