rannsóknasetur öryggis- og varnarmála.
Herra forseti. Auðvitað vil ég náið samband við Kanada og Bandaríkin. Við byggjum á varnarsamningnum frá því í maí 1951. Hann er okkur gríðarlega mikilvægur og það þarf að halda honum við, efla og bæta. Svo er það kannski þessi stóra breyting — við vorum að ræða skýrslu Björns Bjarnasonar hér áðan, það eru ekki mörg ár síðan hún kom út, mjög góð skýrsla, mjög fín, þægilegur lestur, 30 síður og mjög vel sett fram. Stóra breytingin verður náttúrlega eftir innrás Rússlands í Úkraínu í febrúar 2022, fyrir tveimur árum. Þá óska Finnar og Svíar eftir að ganga í Atlantshafsbandalagið og Svíarnir gera það vonandi á næstu vikum. Norðmenn komust inn 4. apríl í fyrra og urðu 31. ríkið í Atlantshafsbandalaginu en svo bíðum við eftir Svíunum. Þetta gjörbreytir náttúrlega stöðu norrænnar samvinnu. Það hefur komið fram, eins og hv. þingmaður kemur inn á, að norrænu herirnir eru að efla það mjög hvernig þeir takast á við málin. Í mörg ár hafa norrænu flugherirnir hist reglulega í Norður-Svíþjóð til að æfa, finnski, sænski og norski flugherinn og Danirnir farnir að taka þátt. Það má ekki gleyma því að þessar fjórar norrænu þjóðir eru með 250 orrustuþotur, fullkomin tæki. Finnarnir eru að endurnýja F-35 vélarnar. 250, það er svipað eins og Bretar og Frakkar eru með, þetta 30 milljóna svæði þannig að þetta er mikið. Maður hefur heyrt að það hafi gengið vel og menn séu enn að þétta raðirnar varðandi framhaldið.