rannsóknasetur öryggis- og varnarmála.
Hæstv. forseti. Ég vil byrja á að þakka fyrir þessa umræðu og þessa mjög svo vel meintu tillögu sem hér er til umræðu. Hv. flutningsmaður tillögunnar, hv. þm. Njáll Trausti Friðbertsson, fór vel yfir breytt umhverfi öryggismála hér á norðurslóðum og stöðuna sem uppi er í dag. Það er full ástæða fyrir Ísland til að koma sér upp eins miklu af sjálfstæðri getu til þess að meta bæði sína öryggishagsmuni, stöðuna í kringum landið og samstarfið sem við erum í á eins sjálfstæðan hátt og mögulegt er. Það er gríðarlega mikilvægt að sjálfstætt og fullvalda ríki haldi algerlega utan um þessa þætti sjálft en láti ekki alltaf öðrum eftir að meta öryggi sitt eins og við höfum dálítið gert á Íslandi undanfarna áratugi.
Hv. þm. Njáll Trausti Friðbertsson kom inn á það áðan að það hefðu komið tvær umsagnir við þetta mál frá háskólastofnunum. Það vill nú svo sérkennilega til að sá sem hér stendur skrifaði undir aðra þeirra, umsögnina frá Háskólanum á Bifröst. Ég ætla ekki að fara í gegnum hana hér eða endurtaka hana með neinum hætti en hv. þingmaður kom ágætlega inn á það að þar voru athugasemdir sem aðallega fólust í því að vekja athygli á að rannsóknir á öryggismálum eru stundaðar víðar en við Háskóla Íslands, og hafa verið undanfarið, og á málum sem beinlínis tengjast öryggismálum. Það er rekið nám í málefnum sem tengjast þessu viðfangsefni, til að mynda á Bifröst þar sem er sérstakt meistaranám í áfallastjórnun. Í undirbúningi er sérstakt grunnnám í öryggisfræðum. Við Háskólann á Akureyri er auðvitað lögreglunámið sem er nátengt þessu líka, sérstaklega hér þar sem við höfum búið okkur til það umhverfi að almannavarnir eru undir hatti ríkislögreglustjóra og okkar öryggisstofnanir eru annars vegar ríkislögreglustjóri og lögreglan og hins vegar Landhelgisgæslan.
Ég gæti líka nefnt það, sem kemur svo sem ekki fram í þessari umsögn okkar, að t.d. á Bifröst er nú þegar samstarf við erlenda háskóla um rannsóknir á hlutum sem tengjast fjölþáttaógnum, netöryggi, öryggi kapla á milli landa o.s.frv., samstarf við háskóla á borð við Cornell og John Hopkins í Bandaríkjunum, ETH Zürich í Sviss og sænska varnarmálaháskólann, Försvarshögskolan. Því eru auðvitað þræðir víða en þetta eru þeir sem ég þekki best. Ég veit auðvitað líka að Alþjóðamálastofnun Háskóla Íslands og fræðimenn tengdir henni hafa stundað þessar rannsóknir mjög lengi og þar er að finna þekkingu.
Akademískar rannsóknir verða til á ákveðinn hátt, á fjölbreyttan hátt og ekkert endilega undir hjálmi einhverra svona stofnana. Ef við horfum t.d. á starf Alþjóðamálastofnunar þá er vissulega rétt að þar eru rannsakendur sem koma að en starfið felst ekki síður í því að vekja athygli á því sem verið er að gera á sviði rannsókna og fá til landsins sérfræðinga annars staðar frá, kynna sjónarmið þeirra o.s.frv. og stuðla þannig að virkri umræðu um alþjóðamál. Það finnst mér þeim takast mjög vel.
Þá er komið að athugasemd minni við þessa ágætu þingsályktunartillögu sem hér er til umræðu. Mér finnst vera ástæða til þess þegar hún verður tekin til umfjöllunar í nefndinni að skoða þann möguleika hvort hugsanlega væri hægt að víkka þetta eitthvað út. Í umræðunni er nú þegar búið að nefna hugveitur sem starfa á hinum Norðurlöndunum og annars staðar í löndunum í kringum okkur. Ég velti því bara upp hér í þessari umræðu hvort mögulega væri hægt að formgera þetta þannig að utanríkisráðuneytið hefði forgöngu að stofnun hugveitu um öryggismál, þar sem utanríkisráðuneytið tæki að sér að leggja til einhvers konar þekkingu, hugsanlega starfsfólk, og peninga til þess að stuðla að samstarfi við þá aðila sem eru að stunda rannsóknir á þessu sviði, en ekki bara þá heldur líka þá sem eru að starfa í þessu á hinum praktíska vettvangi. Nefni ég þar t.d. fulltrúa bæði Landhelgisgæslunnar og ríkislögreglustjóra. Jafnvel mætti nefna fleiri aðila eins og slökkviliðin og björgunarsveitirnar, þess vegna Landsbjörg og aðra slíka aðila sem koma að öryggismálum með ákveðnum hætti. Það kom vel fram í umræðu í gær um almannavarnir að við erum að treysta á sjálfboðaliðakerfi á Íslandi sem í mörgum löndum í kringum okkur er á vettvangi hersins eða einhvers konar þjóðvarðar. Þetta tengist því allt saman.
Ég velti fyrir mér hvort þetta gæti verið einhver leið áfram fyrir þessa ágætu hugmynd sem hér er, því að ég veit að hún kemur ekkert fullsköpuð út úr höfði Seifs heldur held ég að þetta sé bara góð hugmynd sem verið er að leggja inn í púkkið og sé alveg allt í lagi að vinna aðeins áfram ef það er málefninu til framdráttar. Eins og áður segir fer þetta núna í nefnd þar sem gefst kostur á að ræða þetta og ég hlakka til að sjá hvert framhaldið af þessu verður, því að ég held að þetta sé ákaflega mikilvæg umræða og verði æ mikilvægari þegar fram í sækir, því miður.