154. löggjafarþing — 66. fundur,  6. feb. 2024.

rannsóknasetur öryggis- og varnarmála.

86. mál
[18:42]
Horfa

Flm. (Njáll Trausti Friðbertsson) (S) (andsvar):

Herra forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir hans ræðu. Það er náttúrlega svolítið skemmtilegt að vera raunverulega með einn umsagnaraðilann frá síðasta þingvetri í svona umræðu og sérfræðing á sviðinu. Hugmyndin er að þetta verði einhvers konar hugveita líka sem verði ekki hluti af stjórnsýslunni og þessu hefðbundna, sé ekki inni í ráðuneyti eða öðru heldur sé meira almennt og opið umhverfi til að laða fram þekkingu úr öllum áttum. Ég get hins vegar tekið mjög undir að ríkislögreglustjóri og Landhelgisgæslan, þeir sem fara með málefni þar sem snúa að varnar- og öryggismálum, leit og björgun og slíkum hlutum, myndu klárlega geta haft aðkomu að slíkri hugveitu. Ég held að það þurfi alltaf að vera hluti af þessari hugmynd um hugveituna að halda uppi, eins og við þekkjum annars staðar frá, lifandi umhverfi sem snýr að þessu. Þá er mikilvægt að stjórnsýslan og allir þeir sem koma að séu einn hluti með fræðasamfélaginu, almenningi, einkareknum fyrirtækjum og deildum þar í netöryggismálum og hvað það er. Þetta með gagnaverin og strengina — sjálfur kom ég sem skýrsluhöfundur í vísinda- og tækninefnd NATO-þingsins að skýrslu í haust um mikilvæga innviði í sjó, með leyfi forseta, „maritime critical infrastructure“, sem fjallaði um þessi mál. Þetta er hugmyndin: Hugveitan er ekki lokuð inni í ráðuneyti eða í stjórnsýslu. Hún er opið ferli sem allir geta tekið þátt í.