154. löggjafarþing — 66. fundur,  6. feb. 2024.

rannsóknasetur öryggis- og varnarmála.

86. mál
[18:44]
Horfa

Magnús Árni Skjöld Magnússon (Sf) (andsvar):

Forseti. Takk fyrir þetta. Ég skil þá hugmynd hv. þingmanns rétt, að þetta sé fyrst og fremst til að hreyfa við þessari umræðu. Ég held hins vegar að það sé jákvætt að utanríkisráðuneytið sem forsvarsaðili þessara mála, svona að stórum hluta, komi að þessu með einhverjum hætti og lagt er til í þessari þingsályktunartillögu að utanríkisráðuneytið geri samning við ákveðnar stofnanir eða háskóla um að koma þessu á fót. En ég held að það gæti verið ágætt að utanríkisráðuneytið hefði frumkvæði að því að koma þessu af stað, koma samræðunni og samtalinu af stað, en hugsanlega hefðu háskólarnir þá með sér samstarf um að taka við boltanum. Ég held líka að það væri æskilegt að hafa fleiri aðila í þessum samræðum eins og t.d. þá sem ég hef nefnt hér áður, Landhelgisgæsluna og ríkislögreglustjóra.

Ég vil benda á — ég man að við bentum á það líka í umsögninni sem við sendum inn — að háskólaráðherra hefur verið að hvetja til samstarfs á milli háskólastofnana á Íslandi og hefur lagt til hliðar peninga í það samstarf. Það er tiltölulega einfalt umsóknarferli sem háskólarnir fara í gegnum, senda inn umsókn og geta fengið fjármuni í svona samstarf. Ég held að það væri bara tilvalið að Alþingi beindi þeirri hugmynd til háskólanna að þeir tækju þetta málefni upp á sína arma og sæktu um einhvers konar samstarfsverkefni í tengslum við þetta.