154. löggjafarþing — 66. fundur,  6. feb. 2024.

rannsóknasetur öryggis- og varnarmála.

86. mál
[18:47]
Horfa

Flm. (Njáll Trausti Friðbertsson) (S) (andsvar):

Herra forseti. Hér talar hv. þingmaður um samvinnu háskóla sem verið er að vinna að núna. Ég held að það sé bara eitthvað sem þarf líka að þróast innan þessa máls. Þarna er verið að reyna að koma af stað hugveitu. Þetta er ekki mikið apparat en hugmyndin er að tengja saman inn í apparatinu — hvort við köllum það rannsóknarstjóra eða hvað það yrði, en það þarf náttúrlega að tengja þetta vel við fræðasamfélagið. Þá er það kannski mögulega einhver tæknileg lausn sem þarf að finna út úr varðandi aðra háskóla og slíka þætti. Það kom líka fram í minni ræðu áðan að þetta er líka hugsað til þess að embættismenn og aðrir geti aðeins svona endurnýjað sig í starfi og geti komið inn um tíma og unnið verkefni sem tengjast þessu, jafnvel í einhverjum teymum eða hvernig sem menn vilja vinna, að það sé bara frjótt fræðasamfélag sem tengist stjórnsýslunni, einkarekstrinum og öllu sem er í gangi. Eins og hv. þingmaður lauk ræðu sinni áðan þá eru þessi mál ekki að hverfa frá okkur. Eins leiðinlegt og það er þá á þetta bara eftir að stórversna. Og mikilvægi þessa málaflokks — þetta er held ég bara rétt að byrja og á svo mörgum sviðum. Við erum hérna öll með tölvurnar okkar alla daga, allir Íslendingar á samfélagsmiðlum og nýtum okkur öll þau tölvukerfi. Það er bara heilmikið að halda þessu öllu gangandi, gagnaverum, tengingum og öðru, og þetta er risastórt öryggismál þótt ekki væri annað sem við þyrftum að hugsa um. Svo er allt hitt. Þetta er því uppspretta mjög stórra hluta sem þarf að vinna með og ég held og vona að nefndin og við í þinginu getum lent þessu máli með einhverjum skynsamlegum hætti, en fyrst og fremst að þetta efli Ísland í þeim málaflokki sem hér er rætt um.