rannsóknasetur öryggis- og varnarmála.
Hæstv. forseti. Ég ætla mér svo sannarlega ekki að drepa þessari umræðu á dreif. Ég held að hún sé mikilvæg en ég held að það sé engu að síður skynsamlegt að víkka hana út. Svona umræða er auðvitað líka að mörgu leyti, hvað á maður að segja, áhugaverð þegar kemur að akademískum rannsóknum vegna þess að ef við erum að hugsa um að búa til rannsóknir sem gagnast öryggishagsmunum einhverrar þjóðar, einhvers ríkis, þá felur það oft í sér upplýsingar sem liggja ekki á lausu og eru oft og tíðum bundnar trúnaði. Því er oft ákveðin kúnst að stunda akademískar rannsóknir á svona sviði en engu að síður er það mjög spennandi og alveg hægt. Eins og ég hef áður sagt þá hlakka ég til að sjá hvernig þessu reiðir af og vona að það gangi vel.