rannsóknasetur öryggis- og varnarmála.
Virðulegi forseti. Mig langar að byrja á því að þakka framsögumanni, hv. þm. Njáli Trausta Friðbertssyni, fyrir þetta mál. Enn og aftur þá er þetta góð hugmynd. Kannski þarf eitthvað aðeins að útfæra hana betur miðað við þær hugmyndir sem hafa komið hér en mikilvægt engu að síður að við sem Alþingi stefnum að því að unnið sé að því að auka rannsóknir og fræðslu á þessu sviði. Ég held að það sé mikilvægt, eins og kom fram í máli annars hv. þingmanns, að þetta sé gert þvert á stofnanir og háskóla. Ég held að við fáum meira út úr því ef við fáum fólk til að vinna saman. Ég veit það bara af eigin reynslu, af því að ég hef nú verið aðeins í því að kenna í tengslum við krísustjórnun, sem er mjög tengd þessu að vissu leyti — ég hef gert það fyrir næstum því alla háskólana hér á landi vegna þess að allir eru með þetta einhvern veginn inni í sínu námi, hvort sem það er sérgráða í krísustjórnun eins og á Háskólanum á Bifröst eða hluti af öðru námi. Ég held að mikilvægt sé að þetta verði rannsóknasetur en líka að í þessari hugveitu, eins og hér var velt upp áðan, verði horft á öryggi og varnir á mjög breiðu sviði. Það er nefnilega þannig að það sem féll undir varnir fyrir nokkrum árum síðan var það sem menn hugsuðu bara um sem tindáta með byssurnar sínar, sprengjurnar og flugvélarnar, en fjölþáttaógnirnar sem í dag eru nýttar til þess að hafa áhrif eru svo margs konar. Það er mikilvægt að innan seturs eins og þessa sé einmitt hægt að byggja þekkingu upp utan um allar þessar fjölþáttaógnir.
Ég spyr mig stundum: Hvað ætli við Íslendingar myndum lifa lengi af ef við t.d. hættum að geta notað kredit- og debetkortin okkar? Ég er ekki einu sinni viss um að Seðlabankinn eigi nógu mikið af seðlum svo við gætum náð í pening til að lifa af nokkrar vikur án slíks. Hvar værum við ef rafmagnskerfið okkar dytti út af því að einhver réðist á það? Hvar værum við ef internettengingar okkar við útlönd dyttu út? Það þarf ekki lengur neinn að koma hingað á kafbátum eða herskipum eins og Bretarnir gerðu í seinni heimsstyrjöldinni. Hver sem er getur bara setið á sólarströnd einhvers staðar og ýtt á takka og þá dettur allt út á Íslandi.
Þetta er orðið allt önnur veröld sem við búum í og þess vegna þurfum við að blanda saman fólki með þekkingarsvið ekki bara úr stjórnmálafræði og einhverjum alþjóðastjórnmálum, heldur líka fólki sem er með þekkingu á tækninni og þekkingu á krísustjórnuninni. Og öll þessi mismunandi svið þurfa að fá að koma saman og tala saman vegna þess að það er ótrúlegt hvað gerist þegar þessu fólki er blandað saman. Þetta sá ég sjálfur úti í Bandaríkjunum þegar ég var að vinna fyrir regnhlífasamtök 60 stærstu hjálparsamtaka í heimi og mætti einmitt á svona svæði þar sem var allt í einu leyft að hinir og þessir aðilar hittust og létu hugmyndirnar fljóta og flæða. Þetta var merkilegt nokk skipulagt af bandaríska hernum. Fólki úr viðbragðsgeiranum var boðið og fólki úr hjálparstofnunum. Tæknifyrirtækjum var boðið og þarna sátu menn saman í heila viku úti í, á góðri íslensku, rassgati þar sem ekkert annað var að trufla. Þarna sátu menn og hugsuðu um hvernig þeir gætu nýtt þekkingu hvors annars og tækni til að koma með lausnir sem hjálpa okkur í því sem við erum að gera. Upp úr þessu varð t.d. til eitt sem var nýtt, merkilegt nokk, tveimur vikum eftir að einn svona viðburður átti sér stað, þar sem flugvélar frá sjálfboðaliðum flugu yfir svæðið þar sem fellibylurinn Sandy hafði farið yfir New York-fylki. Síðan voru sjálfboðaliðar og tæknin notuð til að mappa það nákvæmlega hvar skemmdir voru á húsum og á hvaða svæði mestu skemmdirnar voru. Á innan við 48 tímum voru komnar upplýsingar til almannavarna í Bandaríkjunum nákvæmlega um hvar þær voru mestar. Þetta hafði oftast tekið tvær til þrjár vikur. Hvernig gerðist þetta? Jú, fólkið sem þurfti að láta þetta gerast hafði fengið að hittast og fengið að hugsa: Hvernig getum við gert hluti? Þess vegna snýst þetta ekki bara um að rannsaka og skrifa einhverjar fallegar skýrslur sem síðan enda einhvers staðar. Þetta snýst einmitt líka um að virkja fólkið, fá fólk til að tala saman, hugsa út fyrir boxin sem við erum öll föst í og koma þannig með leiðir fyrir okkur til að vinna saman sem þjóð með samstarfslöndum og öðrum. Þetta er eitthvað sem ég held að sé hægt að byggja upp ofan á eitthvað svona. Við þurfum að vera dugleg að finna það nákvæmlega út hvert sé besta formið en grunnhugmyndin er góð, jafnvel — ég endurtek það — þótt hún komi frá Sjálfstæðisflokknum.