rannsóknasetur öryggis- og varnarmála.
Herra forseti. Það er rétt hjá hv. þingmanni, og ég þakka fyrir hans ræðu, um fjölþáttaógnir og þá umræðu, eins og hann kom inn á áðan með netöryggismálin, og það er svo margt sem fellur þar undir. Fyrir einu og hálfu ári var ég aðalskýrsluhöfundur að skýrslu í vísinda- og tækninefndinni og hét hún Future Warfare. Þá var einmitt spurningin hvort tæknin væri að taka þetta allt yfir, hvort þetta væru bara vélmenni, Robocop, drónar og það dæmi. Það var svo skrítið að þegar unnið var að þeirri skýrslu byrjar innrásin í Úkraínu. Þá sjáum við þegar við förum að fylgjast með þessu að menn eru bara komnir svolítið aftur í fyrri heimsstyrjöldina og svipaðan hernað; moka skurði, eru fastir þar og annað. En auðvitað er alls konar með, drónarnir náttúrlega breyttu miklu og verið var að nota ódýra dróna til að gera ótrúlega og sérstaka hluti og alls konar hugvit var þarna í gangi í stríðinu. En ég held að við megum ekki, þó að það sé alltaf þessi tækniumræða um að tæknin sé að taka allt yfir, útiloka hefðbundinn hernað í heiminum. Þetta er ekki bara tækni sem er að taka allt yfir. Ég held að það sé lærdómurinn sem við erum að sjá víða um heiminn. Þó að það sé verið að nota dróna mikið og mikla tækni þá fellur mannskepnan einhvern veginn svolítið hratt í gamla tímann, þar sem allt snýst í dag um að útvega 152 millimetra sprengjukúlur. Það er verið að plaffa á allt, skjóta og nota þær gríðarlega mikið í heiminum.