rannsóknasetur öryggis- og varnarmála.
Frú forseti. Já, það er kannski einna best hægt að sjá það að stríð gengur líka út á byssukúlur og annað í baráttu Úkraínumanna og Rússa. Rússarnir eru enn þá að berjast með hefðbundnum vopnum, eða frekar hefðbundnum vopnum, og nota frekar hefðbundna gamla aðferðafræði á meðan Úkraínumennirnir eru komnir með tæknivæddari vopn frá Vesturlöndum og eru að nota svona nútímalegri aðferðafræði þegar kemur að stríðinu sjálfu. Það hefur hins vegar sýnt sig líka að það að láta tæknivæddari vopn í hendur fólks sem ekki er endilega búið að fá langa þjálfun á þeim virkar kannski ekki eins vel og ef þú værir búinn að þjálfa viðkomandi upp um margra ára skeið, eins og vestrænar þjóðir eru kannski meira búnar að gera. Það sem ég var aðallega að tala um þegar kemur að tækninni er það hvað hægt er að gera mikinn óskunda bara með henni og hvað það þarf miklu síður að senda stóran flota á milli svæða til að gera eitthvað við land eins og Ísland. Þar megum við ekki vera sofandi og uppgötva allt í einu að ekkert okkar kerfa virkar og við erum aftur komin í torfkofana.