154. löggjafarþing — 66. fundur,  6. feb. 2024.

rannsóknasetur öryggis- og varnarmála.

86. mál
[19:04]
Horfa

Gísli Rafn Ólafsson (P) (andsvar):

Frú forseti. Ég þakka hv. þm. Njáli Trausta Friðbertssyni fyrir andsvarið. Ég held að hv. þingmaður hafi einmitt hitt naglann á höfuðið þegar hann nefndi áfallaþol þjóðarinnar. Við áttum hér langar samræður í gær, ég og hæstv. forsætisráðherra, um nákvæmlega það. Eitt er þau áföll sem við verðum fyrir af hendi móður náttúru. Þar kannski eigum við góð rannsóknasetur, í þeim náttúruvísindum — ekki það, við getum alltaf eflt þau og bætt við í þeim rannsóknum. En það eru önnur áföll sem mörg hver eru mannanna verk. Þetta hefur stundum verið kallað manngerðar hamfarir á íslensku. Þar er einmitt mjög mikilvægt að við skiljum vel þær ógnir sem að steðja og þau áföll sem við getum orðið fyrir, við sem þjóð, af völdum einhvers sem er verk okkar mannanna. Þess vegna þurfum við líka, rétt eins og við rannsökum jarðskjálfta og eldgos, að rannsaka þær ógnir og skilja hvar við þurfum síðan að fjárfesta í forvarnaaðgerðum til þess að draga úr þeirri áhættu sem þær ógnir stuðla annars að.