breytingar á aðalnámskrá grunnskóla.
Virðulegur forseti. Ég flyt tillögu þessa til þingsályktunar um breytingu á aðalnámskrá grunnskóla. Tillagan hefur áður verið lögð fram á 152. og 153. löggjafarþingi en náði þá ekki fram að ganga og er nú lögð fram að nýju óbreytt.
Tillagan hljómar þannig:
„Alþingi ályktar að fela mennta- og barnamálaráðherra að innleiða hugmyndafræði verkefnisins Kveikjum neistann og gera eftirtaldar breytingar á aðalnámskrá grunnskóla:
a. Að leggja áherslu á bókstafa-hljóðaaðferð við lestrarkennslu.
b. Að innleiða í stað leshraðamælinga stöðumatspróf með bókstafa-hljóðaaðferð, lesskilningspróf og mat á skriflegum texta.
c. Að leggja áherslu á að hver nemandi fái áskoranir miðað við færni. Við innleiðingu framangreindra breytinga verði haft samráð við Rannsóknarsetur um menntun og hugarfar og samtök kennara.“
Mennt er máttur. Góð menntun er það besta sem við getum gefið börnum okkar til að undirbúa þau fyrir lífið. Því er það með öllu ólíðandi að íslenskt menntakerfi standist ekki alþjóðlegan samanburð. Efnahags- og framfarastofnunin, OECD, í París framkvæmir á þriggja ára fresti könnun á menntakerfum aðildarríkja sem gengur undir nafninu PISA. Niðurstöður úr PISA-könnunum síðustu ára eru áhyggjuefni, svo ekki sé vægar til orða tekið. Lesskilningur íslenskra ungmenna er undir meðaltali OECD-ríkja og hefur versnað undanfarna áratugi. Þriðjungur drengja getur ekki lesið sér til gagns. Það vekur miklar áhyggjur að meðalstig íslenskra nemenda á Suðurnesjum, Vesturlandi og Norðurlandi eystra séu lægri en meðalstig nýbúa í Noregi og Danmörku þegar kemur að lesskilningi. Ein helsta breytingin í stjórnkerfinu er sú að Menntamálastofnun mælir nú lestrarhraða allra grunnskólabarna. Það beinlínis segir í leiðbeiningum Menntamálastofnunar um það að sagt er við barnið: Lestu eins hratt og þú getur í tvær mínútur. Þetta hefur valdið miklum kvíða og angist hjá börnum og það á ekki að koma þannig fram við börn sem eru að reyna að læra að lesa. Lesskilningur skiptir öllu máli og hraðinn kemur með æfingunni. Þú lest hraðar eftir því sem þú lest meira. Allir sem hafa prófað að fara út að hlaupa komast að því að þeir hlaupa hraðar því oftar sem þeir fara út að hlaupa. Þannig er það. Mælingar þessar hófust haustið 2017. Þetta fyrirkomulag árangursmælinga hefur sætt gagnrýni fyrir það að mæla ekki lesskilning heldur fyrst og fremst hraða. Vissulega má halda því fram að leshraðamæling feli líka í sér skilning en svo er einfaldlega ekki. Þetta getur skapað óþarfa streitu og kvíða hjá börnum þegar mikil áhersla er lögð á lestrarhraða eins og áður sagði.
Slakur árangur Íslands í PISA-könnunum undanfarinn áratug hefur vakið mikla athygli og margir hafa kallað eftir breytingum í lestrarkennslu. Þar ber helst að nefna Hermund Sigmundsson, prófessor í lífeðlisfræðilegri sálfræði við Háskólann í Þrándheimi. Hermundur hefur lagt mikla áherslu á að íslenskt menntakerfi taki mið af fremstu vísindum til að þróa bætta aðferðafræði við lestrarkennslu og hefur hann m.a. fengið hingað til lands í heimsókn Heikki Lyytinen, prófessor við einn virtasta kennsluháskóla Finnlands og í Evrópu, sem hefur komið hingað og haldið fyrirlestra um lestur. Hann er líka í svokölluðum „chair“ eða stóli hjá menningar- og menntamálastofnun Sameinuðu þjóðanna, UNESCO, sem lýtur að læsi. Ég varð þess heiðurs aðnjótandi að fara á fyrirlestur hjá honum í Hannesarholti og ég spurði hann um hraðlestrarmælingarnar, hvað þær sönnuðu. Jú, þær sönnuðu bara að þú læsir mikið. Hann skildi nánast ekki spurninguna. Það er skilningurinn sem skiptir öllu máli. Ef barn les hægt en skilur textann þá þarf það bara að æfa sig í að lesa meira og meira svo það geti lesið hraðar. Þetta er þjálfun augnanna og heilastöðvanna. Þú verður betri í öllu sem þú gerir oftar og oftar. Því meira sem þú prjónar þá prjónarðu hraðar. Þetta má gera með alla hluti. Við þekkjum þetta sjálf, sama hvaða venju við tökum upp að gera í lífinu, við gerum það hraðar og betur því oftar sem við gerum það.
Prófessor Hermundur hefur einnig fengið hingað til lands prófessor Stanislas Dehaene, helsta sérfræðing Frakklandsstjórnar er varðar lestur. Ég varð þess heiðurs aðnjótandi að fara á fyrirlestur hjá honum og hann lýsti meira að segja hvaða heilastöðvar virkjuðust þegar barn lærði að lesa, það væri vitað hvar þær væru nákvæmlega staðsettar, og hann hvatti alla til að tala mikið við börnin, beint hátt og skýrt. Þannig næði barnið betri æfingu í að skilja og síðar meir yrði það betra að lesa. Það væri grundvallaratriði líka að skilja það að bókstafurinn a, táknið a, hljómi a. Tákninu b fylgi hljóðið b. Þetta er bókstafa- og hljóðaaðferðin og ef barnið skilur ekki þetta forritunarmál, skilur ekki hvað táknið hljómar, mun það aldrei ná alvörutökum á lestri. Þetta þarf að leggja áherslu á á fyrstu stigum læsis, fyrstu stigum í lestrarkennslu. Það lærir enginn að lesa nema skilja þetta. Með latneska stafrófinu er mismunandi hljóð eftir löndum, hvað þessir stafir hljóma. Þetta þurfum við að læra frá einu til heildar, byrja á að læra hvað stafirnir hljóma og svo eru stafirnir settir í orð. Í-s verður ís, a-m-m-a verður amma o.s.frv. Þetta þarf barnið að æfa aftur og aftur þangað til það nær tökum á þessu samspili tákna og hljóðs, svo fer það að lesa. Það er bókstafa- og hljóðaaðferðin. Það er enginn sem lærir að lesa, heilinn skilur ekki táknin nema vita þetta. Þetta er svipað og þegar við tölum.
Í júní 2021 undirrituðu Samtök atvinnulífsins og Háskóli Íslands samning um stofnun Rannsóknarseturs um menntun og hugarfar og var Hermundur skipaður í stjórn setursins. Setrið stendur fyrir rannsóknum á sviði menntunar, með áherslu á menntun, færni og hugarfar, í þeim tilgangi að skapa nýja þekkingu íslensku samfélagi til hagsbóta. Á vegum rannsóknarsetursins er nú unnið að rannsóknar- og þróunarverkefninu Kveikjum neistann í Vestmannaeyjum. Verkefnið er langtímaþróunar- og rannsóknarverkefni í Grunnskóla Vestmannaeyja. Með því er innleidd ný nálgun við lestrarkennslu og er nú farið eftir þeirri nálgun í 1. og 2. bekk í Grunnskóla Vestmannaeyja. Áhersla er lögð á að einfalda lestrarlíkanið, en samkvæmt því skiptir öllu að lestur byggist upp á umskráningu og málskilningi en ekki hraða, þ.e. umskráningu á þeim táknum sem ég fór yfir hér áðan, í stafrófinu.
Markmið verkefnisins er að 80–90% barna séu fulllæs eftir 2. bekk. Samkvæmt niðurstöðum verkefnisins, með tveggja ára reynslu, hafa 98% barna í 1. bekk ráðið lestrarkóðann og 83% barna í 2. bekk eru læs, samkvæmt stöðumati. Til samanburðar var framkvæmt stöðumat í 20 grunnskólum víðs vegar um landið sem sýndi fram á marktækan mun, en aðeins 52% barna voru læs eftir 2. bekk í þeim skólum. Það sem við erum að tala um þar er að eftir 2. bekk í grunnskóla í verkefninu þar sem þessari aðferðafræði er beitt, bókstafa- og hljóðaaðferðinni, eru 83% barna í 2. bekk læs. Uppi á fastalandinu, í viðmiðunarskólunum, er talan 52%. Hér er gríðarlegur munur á ferðinni. Þetta hefur sýnt þennan gríðarlega árangur og nú hefur verið reynt að fá fleiri skóla. Það eru 170 grunnskólar í landinu en það hefur ekki enn þá tekist að fá annan skóla í viðbót við þennan eina grunnskóla í Vestmannaeyjum. Það er algerlega með hreinum ólíkindum að það hafi ekki tekist. Það er ekki einn, ekki tveir, ekki þrír af 170 til í að prófa þetta. Nei, það er ekki hægt. Þessari nýsköpun sem á sér stað í Vestmannaeyjum hefur nánast verið hafnað hérna af 170 skólum þrátt fyrir árangur, þrátt fyrir vísindagreinar sem hafa verið skrifaðar um þær rannsóknir sem hafa verið gerðar sem sýna að 82% barna eftir 2. bekk séu læs og 98% barna í fyrsta bekk ráði lestrarkóðann en 53% eftir 2. bekk í öðrum grunnskólum, viðmiðunarskólunum tuttugu. Það hefur ekki tekist. Það er rannsóknarefni hvernig það á að vera. Það er enginn að krefjast þess að allir 170 skólarnir taki upp þessa aðferðafræði. Það hefur ekki tekist með því að tala við skólastjórnendur, sveitarstjóra og aðra. Nei, og þetta viðhorf gagnvart prófessor Hermundi Sigmundssyni er með algerum ólíkindum. Það getur vel verið að hann búi erlendis og segi sínar skoðanir beint en það er alveg með ólíkindum hvernig framkoman hefur verið, m.a. í Háskóla Íslands.
Ríkjandi lestrarkennsluaðferðir í grunnskólum skila ekki nógu góðum árangri. Þörf er á aðgerðum til að kalla fram betri árangur. Í aðalnámskrá grunnskóla er kveðið á um meginmarkmið náms og kennslu, uppbyggingu og skipan náms, svo og hlutfallslega skiptingu tíma milli námssviða og námsgreina, auk fleiri atriða. Með því að gera viðeigandi breytingar á aðalnámskrá og skipuleggja lestrarkennslu til samræmis við nýjustu þekkingu og vísindi má stuðla að bættri lestrarkennslu.
Í ljósi þess árangurs sem þegar hefur náðst á vegum verkefnisins Kveikjum neistann og þeirra vísinda sem liggja að baki aðferðafræði þess er lagt til að fela mennta- og barnamálaráðherra að innleiða hugmyndafræði verkefnisins í aðalnámskrá grunnskóla og að sú innleiðing fari fram í samráði við Rannsóknarsetur um menntun og hugarfar og samtök kennara.
Ég vil taka dæmi og benda á það að Bretar hafa t.d. innleitt bókstafa- og hljóðaaðferðina í sína grunnskóla með lögum. Það kom skýrsla, minnir mig, fyrir árið 2010, svokölluð Rose-skýrsla, sem sýndi ófremdarástand varðandi lestur. Í kjölfar þess var ákveðið að löggjafinn tæki málið í sínar hendur og það væri löglegt, leitt í lög. Sama hafa Frakkar gert, sett lög um það að þetta er aðferðafræðin sem á að beita, af því það er þannig sem heilinn vinnur, hann lærir að skilja táknin, hvaða hljóð fylgja táknunum, bókstafa- og hljóðaaðferðin, en við virðumst vera að gera þetta með allt öðrum hætti og ekki nægilega skipulega, vissulega er byrjendalæsi sem strax sýndi á upphafsárum sínum að það skilaði lakari árangri en gamla aðferðin, gagn og gaman. Vissulega er það bókstafa- og hljóðaaðferðin en henni er ekki beitt eins skipulega og eingöngu í upphafi lestrarkennslu. Svo voru PISA-niðurstöðurnar sem komu í haust alveg hrikalegar. Þær sýndu það að 40% nemenda næðu ekki grunnfærni í lestri, ekki grunnfærni. Þar kom líka fram að við værum ekki einungis að svíkja þessi 40% heldur líka afburðanemendurna og í stjórnkerfi menntamála, sem mennta- og barnamálaráðherra ber ábyrgð á samkvæmt forsetaúrskurði — samkvæmt stjórnskipun Íslands ber hann ábyrgð á menntamálum í landinu. Hann ber ábyrgð á framkvæmd laga um grunnskóla og laga um framhaldsskóla. Í lögum um grunnskóla er aðalnámskrá og þessi tillaga felur í sér að þessar breytingar sem ég taldi upp hér áðan verði settar í aðalnámskrá grunnskóla, að leggja áherslu á bókstafa- og hljóðaaðferðina við lestrarkennslu, innleiða í stað leshraðamælinga stöðumatspróf með bókstafa- og hljóðaaðferð, lesskilningspróf og mat á skriflegum texta, leggja áherslu á að allir nemendur fái áskoranir miðað við færni, að það sé ekki verið að ofgera nemendunum. Það veldur kvíða og angist. Hraðlestrarmælingarnar gera það. Það er búið að sanna það og hefur komið fram í umræðunni á Íslandi.
Ég verð að segja eins og er að eitt það sorglegasta sem ég hef kynnst í þessu starfi sem ég er í hér við þessa stofnun er varðandi menntamálin, ástandið í menntamálum, ástandið í læsi barna. Ég hef hitt foreldra í mínu kjördæmi, þeir eru að lýsa því nánast yfir þegar þeir segja við mig óbeint að barnið þeirra kunni nánast ekki að lesa, að barni skilji allt sem það lesi, það lesi rosalega hratt en það bara muni ekki það sem það las. 18, 20, 19 ára barn — foreldri segir við mig að það hafi alltaf átt í erfiðleikum með að lesa. Dóttir mín er lesblind en hún er rosalega góð að lesa ef hún heyrir hljóðbókina, þá veit hún hvað orðin hljóma, en að hún geti stafað sig í gegnum það að þetta er Alþingi, A-l-þ-i-n-g-i, nei, það er ekki hægt, en um leið og hún heyrir þá sér hún hvað það er. Læsisprófin sem hafa verið notuð til að sýna fram á það að 83% nemenda séu læs eftir 2. bekk byggjast ekki á hraðlestrarprófinu, og að það hafi ekki komið einn skóli í viðbót við þetta kerfi er með hreinum ólíkindum. Það er ekki verið að fara fram á mikið með því sem hefur verið óskað eftir á undanförnum misserum eða mánuðum, að það komi annar skóli til, en það virðist ekki vera vilji til þess. Ég tel að þetta sé eina leiðin til að innleiða þessa aðferðafræði, grunnaðferðafræði við lestrarkennslu, (Forseti hringir.) það er bókstafa- og hljóðaaðferðin og það er þannig sem börn læra að lesa. Það er grundvallaratriði að þetta fari inn í aðalnámskrá. (Forseti hringir.) Núverandi stjórnvöld virðast ekki vera að gera mikið til að taka á þessum gríðarlega vanda sem varðar lestrarþekkingu í landinu.