154. löggjafarþing — 66. fundur,  6. feb. 2024.

breytingar á aðalnámskrá grunnskóla.

87. mál
[19:26]
Horfa

Flm. (Eyjólfur Ármannsson) (Flf) (andsvar):

Virðulegur forseti. Ég vil þakka hv. þm. Sigþrúði Ármann kærlega fyrir sína fínu ræðu og það að vitna í fyrrverandi forseta, frú Vigdísi Finnbogadóttur, um að dýrmætasta gjöfin sé að vera látinn læra að lesa sem barn. PISA-kannanir sýna það að 40% af börnum læra ekki að lesa sem börn. Við erum að tala um 15 ára unglinga sem hafa ekki náð grunnfærni. Við erum ekki að tala um einhverja hraðlestrarfærni, einhvern gríðarlegan hraðlestur, heldur grunnfærni — 40%. Ég vil meina það að börn sem læra ekki að lesa heima hjá sér læri ekki að lesa eða lenda alla vega í miklum erfiðleikum. Það eru þessi 40% sem PISA-kannanir sýna. Við getum rétt ímyndað okkur hvernig börnum innflytjenda líður í þessu kerfi.

Það er gott að heyra það innan úr Sjálfstæðisflokknum að þeim líst vel á þessa tillögu og þessa aðferðafræði og styðja baráttu prófessors Hermundar Sigmundssonar sem hefur verið 22 ár á Íslandi að berjast fyrir þessu. Við skulum vona að hann fari ekki að hætta baráttunni á Íslandi vegna þess að það er ekki hægt að vera hérna endalaust. Það er hægt að gera margt annað við starfsævina en að vera hér og verða fyrir einelti.

Mig langar að spyrja hv. þingmann að því hvort hún telji að það sé möguleiki á því að þessi aðferðafræði geti farið í fleiri skóla núna þegar Sjálfstæðisflokkurinn er í ríkisstjórn og hvort það sé ekki vert að flokkurinn fari að gera eitthvað og beiti sér, ég segi ekki af hörku en bara með ákveðnum hætti. Nú eru Framsóknarmenn með barna- og menntamálaráðuneytið, en ætlar Sjálfstæðisflokkurinn, og þá vonandi þingmaðurinn, að beita sér fyrir því í störfum sínum gagnvart skólum og sveitarfélögum og hinu ágæta sveitarfélagi Garðabæ að þessi aðferð verði jafnvel tekin upp (Forseti hringir.) þar? Ég prófaði í mínu kjördæmi en það hefur ekki gengið.