154. löggjafarþing — 67. fundur,  7. feb. 2024.

Störf þingsins.

[15:16]
Horfa

Arndís Anna Kristínardóttir Gunnarsdóttir (P):

Forseti. „Ísland er frjálst og fullvalda ríki með frelsi, jafnrétti, lýðræði og mannréttindi að hornsteinum,“ segir í aðfaraorðum nýrrar stjórnarskrár samkvæmt frumvarpi stjórnlagaráðs. Ég ímynda mér að flestir landsmenn geti fallist á þessi orð, hvað svo sem hverjum gæti þótt um drögin að öðru leyti. Mannréttindi eru ekki bara lagaleg réttindi fólks samkvæmt einhverjum samningum, þau minna okkur á það sem skiptir okkur mestu máli í samskiptum og samlífi mannfólksins, það sem aldrei má gleymast og það sem sagan sýnir að leiðir til mikilla hörmunga fyrir mannkynið ef virt er að vettugi. Við búum við stórar áskoranir í heiminum í dag; loftslagsbreytingar, smitsjúkdóma, ójöfnuð, stríðsátök og örar tæknibreytingar sem bæði fela í sér tækifæri og skapa vandamál sem flestar þjóðir eiga sameiginleg. Þessar áskoranir geta skapað ákveðna ógn við gildin okkar og eru gjarnan tilefni inngripa í frelsi fólks og réttindi. Það er við þessar aðstæður sem við þurfum að halda einna fastast í grunngildin okkar, í mannréttindin, og minna okkur á hvers vegna þau eru til komin. Það er við þessar aðstæður sem hættan á því er sem mest að við föllum í sömu gildrurnar, gildrurnar sem hafa leitt slíkar hörmungar yfir mannkynið að í hvert sinn finnum við nýjar leiðir til þess að lofa okkur sjálfum að þetta munum við aldrei láta gerast aftur.

Forseti. Besta leiðin til þess að standa vörð um grundvallargildi okkar og réttindi er að efla þau, ekki skerða. Ekkert jákvætt hefur komið til í mannkynssögunni af útilokun þeirra sem eru öðruvísi, því að dæma fólk fyrir uppruna sinn og útskúfun fólks sem allt óskar sér þess sama þegar upp er staðið; frelsis, öryggis og tækifæra til lífs. Nei, skærustu augnablik mannkyns hafa öll snúist um samstarf, skilning, uppbyggingu og þar af leiðandi ný tækifæri saman. Ef við höfum misst boltann á þessari vegferð er kominn tími til að taka hann upp aftur því að aðeins þessi vegferð getur leitt okkur áfram inn í framtíð sem þarf ekki að skammast sín fyrir fortíðina.