154. löggjafarþing — 67. fundur,  7. feb. 2024.

Störf þingsins.

[15:21]
Horfa

Sigmar Guðmundsson (V):

Herra forseti. Það er þetta með viljann og verkin. Stjórnmál eru samtal og aðgerðir. Innantóm orð um aðgerðir sem verða ekki að veruleika eru í sjálfu sér lítils virði. Mér finnst við sjá allt of mörg dæmi um þetta þessa dagana hjá stjórnvöldum. Það virðist vera vilji hjá hluta ríkisstjórnarinnar til að koma til móts við þá Palestínumenn sem hafa mótmælt því að ekkert verði úr fjölskyldusameiningu sem þó hefur verið samþykkt. Hægri hluti stjórnarinnar er hins vegar tregari til þótt sá armur ríkisstjórnarinnar vilji glaður taka á móti fólki frá Úkraínu og hafi hlutast til um á sínum tíma að fólk sem var að flýja sósíalismann í Venesúela fengi aukna aðstoð. Allt á þetta að vera svo óskaplega flókið. En þetta er þó ekki flóknara en svo að óbreyttir borgarar hafa farið og sótt fólk sem ríkisstjórninni fannst of flókið að sækja, fólk sem er þá óhult frá sprengjuregni, tortímingu og dauða. Það er nefnilega þetta með viljann og verkin. Innantóm orð segja ekkert. Það eru verkin sem tala.

Það skortir ekkert á það að ráðherrar tali um nauðsynlegar aðgerðir til að stemma stigu við ópíóíðafaraldrinum og vímuefnavandanum sem leggur fólk í gröfina í tugatali á hverju einasta ári. Samúð okkar allra er svo sannarlega með þessu fólki og aðstandendum þess, en hversu mikils virði eru orð um aðgerðir sem aldrei verða að veruleika? Vandinn er flókinn en það leysir okkur ekki frá ábyrgðinni og að orðum fylgi efndir. Að lofa úrbótum en tefja og jafnvel hætta við verkin vegna þess að þau eru svo flókin er verra en að játa strax að menn ráði ekki við verkið. Innantóm orð án aðgerða vekja nefnilega falsvonir hjá fólki sem er að flýja sprengjuregn eða missa unga ástvini úr hræðilegum sjúkdómi. Þá er betra fyrir alla að stjórnarflokkarnir játi það hreinskilnislega að þeir nái ekki saman um aðgerðir. Það er nefnilega svo að stærsta flækjan í þessu öllu og reyndar fleiri málum er ósamlyndi og þref við ríkisstjórnarborðið. Þetta þref er því miður örlagavaldur í lífi margra.