154. löggjafarþing — 67. fundur,  7. feb. 2024.

Störf þingsins.

[15:31]
Horfa

Brynhildur Björnsdóttir (Vg):

Herra forseti. 123 dagar. 123 dagar síðan Hamas-liðar réðust inn Ísrael með offorsi og Ísraelsmenn svöruðu og eru enn að svara með fordæmalausu ofbeldi og grimmd. Fólk er lokað inni og á ekki annarra kosta völ en að bíða. Sum bíða eftir mat, sum bíða eftir vatni, sum eftir næsta sprengjuregni og sum, rúmlega 100 manns, eru að bíða eftir okkur. Dvalarleyfi hafa verið afgreidd af Útlendingastofnun. Fararleyfi hafa verið afgreidd úr félags- og vinnumarkaðsráðuneytinu. Aðstoð yfir landamæri er í lögsögu utanríkisráðuneytisins. Það er flókið. Það hefur verið upplýsingaóreiða í kringum þessi mál, um hvað er flókið og hvað er hægt og hver á og hver má gera og fara og aðhafast. Hæstv. forsætisráðherra hefur sagt skýrt að það eigi að sækja þetta fólk sem er að bíða eftir okkur. Hæstv. félags- og vinnumarkaðsráðherra hefur sagt að við eigum að gera allt sem í okkar valdi stendur. Meiri hluti þingheims er sammála sem og þorri þjóðarinnar. Þegar kerfin bila tekur fólkið við. Konurnar þrjár sem fóru í stelpuferð að eigin sögn til Egyptalands og sóttu þrjú börn og eina móður með dvalarleyfi á Íslandi gátu ekki sótt 100 og eitthvað einstaklinga. Þær sóttu hins vegar fjóra. Einn einstaklingur kom sér hingað sjálfur. Þannig í síðustu viku voru 128 Palestínumenn, -konur og -börn með íslenskt dvalarleyfi á Gaza. Eftir vendingar síðustu daga eru 123 eftir. 123 dagar, 123 einstaklingar. Ef við hefðum sótt eina manneskju á dag væru þau öll komin, öll 123.

Virðulegi forseti. Við getum ekki bjargað öllum en við getum bjargað þeim 123. Sækjum þau.