Störf þingsins.
Virðulegi forseti. Aðgengi að góðri heilbrigðisþjónustu eru grundvallarmannréttindi. Hér á landi höfum við búið við traust opinbert heilbrigðiskerfi þar sem öll eiga sama rétt til þjónustu óháð efnahag og stöðu. Traust búseta og fjölskylduvænt samfélag á landsbyggðinni felst í öruggu aðgengi að góðri heilbrigðisþjónustu, menntun, heilnæmu umhverfi, traustum fjarskiptum, samgöngubótum og fjölbreyttum atvinnutækifærum við allra hæfi. Ein grundvallarforsenda búsetuöryggis er öruggt aðgengi að heilbrigðisþjónustu. Íbúar á öllu landinu verða að geta sótt heilbrigðisþjónustu nálægt sínum heimahögum. Því verður að halda áfram að byggja upp og efla heilbrigðisþjónustu um land allt og tryggja um leið að allir landsmenn eigi aðgang að bestu mögulegu opinberu heilbrigðisþjónustu.
Áhyggjuefni er hve langir biðlistar eru eftir aðgerðum, að fólk standi frammi fyrir því að leggja út í mikinn kostnað til að komast í aðgerðir utan almenna heilbrigðiskerfisins. Það eru fjárútlát sem sum okkar ráða einfaldlega ekki við, enda viljum við ekki samfélag þar sem samfélagssáttmálinn um jafnt aðgengi allra að heilbrigðisþjónustu er rofinn. Án aðkomu hins opinbera mun framboð af aðgerðum innan einkageirans frekar nýtast efnafólki og ekki reynast sú blessun sem einhverjir horfa til. Margir óttast, ekki síst stjórnendur ríkisrekinna sjúkrahúsa, læknar og annað heilbrigðisstarfsfólk, að samhliða aukinni útvistun læknisaðgerða til einkaaðila muni Landspítalann og aðrar heilbrigðisstofnanir missa frá sér starfsfólk. Okkar helstu stofnanir búa nú þegar við alvarlegan mönnunarvanda. Í mínum huga er ótækt að ráðast í frekari útvistun verkefna úr almenna heilbrigðiskerfinu til einkaaðila án stefnumarkandi ákvarðana um framtíð þess eins og ýmis stjórnmálaöfl tala nú fyrir. Það er ekki þjóðarvilji fyrir því að einkavæða íslenska heilbrigðiskerfið. Sú vegferð að útvista í ríkara mæli aðgerðum til einkaaðila mun aðeins auka kostnað sjúklinga og kostnað ríkisins af rekstri heilbrigðiskerfisins og auka mönnunarvandann á okkar helstu sjúkrastofnunum. Til lengri tíma verður að tryggja í hvívetna öflugt opinbert heilbrigðiskerfi. Um það er þjóðarsátt.