Fáliðuð lögregla.
Frú forseti. Ég vil þakka málshefjanda fyrir að taka upp þetta mikilvæga mál hér í þingsal og ráðherra fyrir að mæta til umræðunnar. Ég get tekið undir mjög margt af því sem sagt hefur verið hér á undan og ætla þess vegna aðeins að stíga nokkur skref til baka og reyna að draga fram mikilvægi þess að við skoðum þessi mál heildstætt. Það er auðvitað ein af frumskyldum ríkisins að sinna þeim málum sem hér er fjallað um með forsvaranlegum hætti. Staðan er sú í dag að það er sama hvort horft er til löggæslunnar, fangelsismála eða málefna er snúa að vörn landamæra og landhelgi, alls staðar er skorið við nögl. Sem dæmi, þó að það tengist ekki því umræðuefni sem hér er undir með beinum hætti, þá bárust síðast í gær fréttir af hræðilegu sjóslysi frá Færeyjum þar sem tveggja sjófarenda er saknað. Hin öfluga leitarvél okkar, TF-SIF, eftirlitsflugvélin, er alltaf í Miðjarðarhafi vegna blankheita. Mér finnst forgangsröðin vera með þeim hætti að við verðum að nálgast þessa umræðu þannig að frumskyldu hins opinbera sé sinnt með forsvaranlegum hætti. Það á jafnt við um mönnun lögregluembættanna, það að fangelsin geti tekið við þeim verkefnum sem dómskerfið með einum eða öðrum hætti færir þeim og það að hin almenna löggæsla nái aftur vopnum sínum, ef svo má segja. Ég hef trú á því að hér í þingsal sé skilningur á því og vilji til að koma þessum málum til betri vegar. En það breytir því ekki að á meðan lausatökin í ríkisfjármálunum eru eins og þau hafa verið undanfarin ár (Forseti hringir.) og kjörtímabil þá er erfiðara um vik en annars væri að sinna þessum frumskyldum með forsvaranlegum hætti.