154. löggjafarþing — 67. fundur,  7. feb. 2024.

Fáliðuð lögregla.

[16:15]
Horfa

Stefán Vagn Stefánsson (F):

Virðulegur forseti. Það er afar ánægjulegt að fá að taka þátt í þessari umræðu í dag í þessum sal um stöðu lögreglunnar og sérstaklega stöðu lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu. Vil ég þakka málshefjanda, hv. þm. Þorbjörgu Sigríði Gunnlaugsdóttur, sérstaklega fyrir koma með þetta mál hér inn í þingsal þó að það sé erfitt að tæma sig á þeim tveimur mínútum sem okkur eru gefnar í það. Það er öllum ljóst að verkefni lögreglunnar hafa breyst mikið á síðustu árum; meiri harka, aukið ofbeldi, stærri mál og oft og tíðum flóknari er sá veruleiki sem við okkur og lögreglunni blasir. Það sjáum við í fjölmiðlum alla daga. Í samtölum við lögregluna er ljóst að við núverandi ástand verður ekki unað öllu lengur enda eykur það aukna álag sem starfsmenn lögreglu finna vel fyrir á hverjum degi hættu á brotthvarfi úr starfi, kulnun og óöryggi í vinnunni þar sem óvíst er hvenær liðsauki berst í þeim málum sem eru þess eðlis að þess er þörf. Þeim málum fer hratt fjölgandi.

Öryggi lögreglumanna þarf að vera eins tryggt og kostur er og gera þarf lögreglu kleift að sinna þeim verkefnum sem ætlast er til að lögreglan sinni á hverjum tíma. Að því sögðu er ljóst að sú staða sem uppi er og hefur verið um nokkurt skeið er mikið áhyggjuefni, þar sem fjölgun lögreglumanna hefur ekki haldið í við þær áætlanir sem gerðar hafa verið. Sérstaklega er þróunin á höfuðborgarsvæðinu mikið áhyggjuefni þar sem þungi verkefna er hvað mestur. Ég held samt að það sé mikilvægt í þessari umræðu að við reynum að horfa til framtíðar og leita lausna um hvernig við getum snúið þessari þróun við. Þar vega þungt starfsumhverfi, öryggi, launakjör og menntun lögreglumanna. Auk þess, virðulegur forseti, þar sem tími minn er á þrotum, þá held ég að við þurfum líka að skoða með hvaða hætti við getum fengið þá fjölmörgu lögreglumenn sem lagt hafa skóna á hilluna aftur til starfa, (Forseti hringir.) vegna þess að þar er mikill mannauður sem við erum ekki að nýta í dag.