154. löggjafarþing — 67. fundur,  7. feb. 2024.

fjáraukalög 2024.

626. mál
[16:43]
Horfa

Logi Einarsson (Sf) (andsvar):

Frú forseti. Þetta verður frekar stutt fyrra andsvar a.m.k. Heyrði ég það rétt að hv. þingmaður hafi talað um að hann ætlaði að koma til nefndarinnar á næstu dögum með einhver gögn sem sýndu fram á að ekki þyrfti að breyta lögum eða samþykktum Bríetar? Ef svo er ekki þá hefur mér misheyrst og þá fell ég frá seinna andsvarinu en fer frekar í ræðu á eftir.