fjáraukalög 2024.
Frú forseti. Það er út af fyrir sig gott en það er hins vegar mjög sérstakt að þær upplýsingar komi fram þegar mælt er fyrir nefndaráliti hér. Ekki var annað að heyra á fulltrúum ráðuneytisins og Bríetar á síðasta fundi fjárlaganefndar en að það þyrfti ekki að gera þetta. Það hlýtur auðvitað að skipta miklu máli að þær upplýsingar séu tiltækar þegar nefndarálit er sent til einstakra nefndarmanna og þeir spurðir hvort þeir hyggist vera með á álitinu. Mér hefði þótt það einnar messu virði að það hefði a.m.k. verið hringt í nefndarmenn þannig að þetta kæmi ekki fyrst fram hér.
Kannski er ég að misskilja eitthvað, kannski hefur mér aftur misheyrst. En er það ekki rétt, hv. þingmaður, að það var algerlega skýrt á síðasta fundi, þar sem fulltrúar bæði fjármálaráðuneytisins og Bríetar voru, að það þyrfti ekki að gera þetta og það stæði ekki til að gera þetta?