fjáraukalög 2024.
Virðulegur forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir andsvarið og það er bara mjög gott að taka þessa umræðu. Við ræddum þetta töluvert í fjárlaganefnd og það er mjög gott að geta tekið þetta fyrir hér og skýrt þetta betur út ef einhver misskilningur er í málinu. Það var alveg rétt að fulltrúar innviðaráðuneytisins og Bríetar töldu sig hafa heimild til að kaupa þessar eignir á höfuðborgarsvæðinu samkvæmt þeim samþykktum sem fyrir liggja um félagið Bríet. Það kom fram í minnisblaði ráðuneytisins þar sem farið var yfir það. Það var hins vegar ljóst, held ég, að við sem sátum í fjárlaganefnd skildum ekki alveg af hverju þessum samþykktum var ekki breytt til þess að taka af allan vafa. Við lögðum mjög hart að Bríeti að fara í þá vinnu. En leyndarmálið sem ég er að uppljóstra hér var sent í tölvupósti til fjárlaganefndar kl. 9.26 í morgun þar sem það var upplýst að leigufélagið Bríet myndi taka þetta mál upp á næsta aðalfundi eða á næsta fundi félagsins þar sem þessar samþykktir yrðu endurskoðaðar til að koma betur til móts við, og taka af allan vafa, þau sjónarmið sem komu svo sannarlega sterkt upp í meðförum málsins í fjárlaganefnd þar sem mjög sterkt var kallað eftir því að farið yrði í þessa vinnu. Nú sé ég ekki betur en að það verði gert, sem er gott, þ.e. að hlustað sé á okkur í fjárlaganefnd.