fjáraukalög 2024.
Virðulegi forseti. Ég vil taka undir þá umræðu sem átti sér stað í andsvörum frá hv. þm. Loga Einarssyni. Þetta lýtur ekki einungis að samþykktum, þ.e. að búið sé að breyta samþykktum Bríetar áður en þetta kemur til umræðu í þessum þingsal. Þetta lýtur ekki einungis að samþykktunum heldur líka að breytingu á lagaheimild Húsnæðis- og mannvirkjastofnunar, þeirri lagaheimild sem Bríet byggir á, þar sem kveðið er á um að Bríet megi einungis starfa á ákveðnum svæðum þar sem markaðsbrestur er. Nú er svo komið að Bríet starfar á öllu landinu, ekki á ákveðnum svæðum lengur eins og segir í lögunum. Og ég mun fjalla nánar um þetta í ræðu minni hér á eftir.
En mig langar að spyrja hv. þingmann um það sem kom fram í ræðu hans og er í greinargerð um það að kaup Bríetar ásamt samdrætti í fjölda nýbygginga á milli ára geti leitt til þess að leiguverð og húsnæðisverð hækki verulega á næstu mánuðum. Vissulega er gott að kalla eftir greiningu hvað það varðar. En það að leiguverð og húsnæðisverð hækki verulega á næstu mánuðum, hvað þýðir það? Jú, það þýðir að það verður framboðsskortur og það hefur lengi verið framboðsskortur í landinu, alveg ótrúlega lengi, án aðgerða ríkisvaldsins. Við höfum kallað eftir því í mínum flokki og stjórnarandstöðunni að framboðið verði aukið. Og hvað þýðir það? Hækkun húsnæðisverðs og þar af leiðandi hærri verðbólgu þar sem húsnæðisverð er enn í verðbólguvísitölunni, ekki einungis húsnæðisleiga.
Spurning mín til hv. þingmanns er þessi: Er ekki kominn tími á það núna að ríkisvaldið fari að beita sér af meiri krafti í mótvægisaðgerðum til að stemma stigu við þessari verulegu hækkun á leigu- og húsnæðisverði sem fyrirsjáanleg er á næstu mánuðum, eins og kom fram í ræðu hans. Hér er klassískt dæmi þess þar sem ríkisfjármálin eru að hafa áhrif á verðbólguna. (Forseti hringir.) Þú getur ekki bara aukið verðbólguna, þú getur líka dregið úr verðbólgunni með ríkisfjármálum og ákveðnum aðgerðum þar.