fjáraukalög 2024.
Virðulegur forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir andsvarið. Þetta er rétt sem hv. þingmaður segir, ég held að allir séu sammála um þetta. Það er enginn ágreiningur uppi og ég hef ekki heyrt neinn ræða þessi mál á öðrum nótum en þeim að menn hafi verulegar áhyggjur af því að þegar þessi hópur kemur inn á markaðinn muni það hafa áhrif á fasteignaverð hér í landinu, bæði leigu- og fasteignaverð. Og besta leiðin til að koma til móts við það er að styrkja framboðshliðina og það er það verkefni sem ég veit að er í gangi núna, að athuga hvaða leiðir við eigum til að setja innspýtingu þar inn svo að um muni. Það er langskilvirkasta leiðin til að reyna að stemma stigu við þessari þróun sem ég held engu að síður að verði óhjákvæmileg. Spurningin er bara hvort við náum að stíga á hana, hvort við náum henni niður. En hún mun fara upp, markaðurinn segir það, það er nánast óumflýjanlegt. Staðan er vissulega snúin. Það er erfitt og ómögulegt að gera ekki neitt en þetta er hliðarafurð sem við þurfum með einhverjum hætti að koma böndum á eins og hægt er.