154. löggjafarþing — 67. fundur,  7. feb. 2024.

fjáraukalög 2024.

626. mál
[16:52]
Horfa

Eyjólfur Ármannsson (Flf) (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir svarið. Eins og kom fram í ræðu hv. þingmanns hér áðan og í greinargerð þá er talað um að kaup Bríetar ásamt samdrætti í fjölda nýbygginga milli ára geti leitt til þess að leiguverð og íbúðaverð hækki verulega á næstu mánuðum. En það eru ekki bara þessi kaup Bríetar, við erum að tala um kaup á 120 íbúðum. Í desember voru keyptar 80 íbúðir þannig að samanlagt hefur Bríet keypt 200 íbúðir. En hver er þörfin? Þörfin er 1.200 íbúðir. Eldsumbrotin og jarðskjálftarnir í Grindavík hafa leitt til þess að þörf er fyrir 1.200 íbúðir. Þessi verðhækkun er ekki bara af kaupum á þessum 120 íbúðum núna og 80 í desember heldur líka af þeim 1.000 íbúðum sem einstaklingar hafa útvegað sér sjálfir. Það er því gríðarleg eftirspurn eftir húsnæði, og svo getum við talað um fólksfjölgun og annað slíkt.

Það sem ég hefði viljað sjá í þessari greinargerð er það hvaða aðgerðir ríkisvaldið fer í til að stemma stigu við þessari hækkun og þá að taka sérstaklega fyrir þessa auknu þörf upp á 1.200 íbúðir. Það er atriði sem ég hefði gjarnan viljað sjá hér hvað þetta varðar. Þetta mun nefnilega leiða til aukinnar verðbólgu. Það var vaxtaákvörðunardagur í gær og við erum enn föst í 9,25% vöxtum. Það breytir því ekki að við erum heils hugar sammála þessum kaupum en það verður að fara í mótvægisaðgerðir til að stemma stigu við þessari hækkun. Og ég tel að það þurfi að gera enn betur út af þessum jarðhræringum í Grindavík. Það er farið vel yfir það í greinargerðinni, eins og kemur fram þar, að með áætlaðri innkomu 3.000 nýrra íbúða á markað í ár búist Húsnæðis- og mannvirkjastofnun við því að uppbygging nýrra íbúða muni einungis uppfylla tæplega 60% íbúðaþarfar ársins. Við erum hér að tala um 40% skort.