154. löggjafarþing — 67. fundur,  7. feb. 2024.

fjáraukalög 2024.

626. mál
[17:07]
Horfa

Frsm. meiri hluta fjárln. (Stefán Vagn Stefánsson) (F) (andsvar):

Virðulegur forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir þetta. Ég sit ekki í stjórn Bríetar en eins og ég hef verið að reyna að skýra hér — það er alveg rétt að ég kom inn á það áðan að fjárlaganefnd gerði athugasemdir við samþykktir Bríetar fyrir áramót og þar voru menn með lögfræðiálit sem sagði þeim að samþykktirnar dygðu og væru nægilegar til þess að þeir mættu kaupa íbúðir á höfuðborgarsvæðinu. Það er nú kannski ekki alveg rétt að íbúðirnar hafi verið keyptar aftur. Þær voru keyptar á höfuðborgarsvæðinu, ekki keyptar aftur. (LE: Það var hætt við tímabundið.) Þær voru ekki keyptar aftur, hv. þingmaður. (LE: Nei, nei.) Eins og ég skil þetta þá eru menn einfaldlega að taka tillit til þess og þeirrar gagnrýni sem kom fram fyrir jól og aftur núna í janúar þegar við vorum að ræða um seinni hlutann um að það væri hreinna og skýrara að breyta samþykktunum þannig að þetta væri algerlega skýrt. Ég held að menn séu bara að reyna að taka af allan vafa því að eins og kom fram í ræðu hv. þingmanns þá held ég að við öll sem erum hér inni í þessum sal styðjum þessi mál, viljum vera á þessum málum og styðja Grindvíkinga. Ef þetta, að breyta samþykktum Bríetar, verður til þess að ná meiri sátt og samstöðu innan þingsins um þessi mál þá er þess virði að fara þá vegferð.