154. löggjafarþing — 67. fundur,  7. feb. 2024.

fjáraukalög 2024.

626. mál
[17:12]
Horfa

Eyjólfur Ármannsson (Flf):

Virðulegur forseti. Ég styð þetta frumvarp og að Alþingi veiti þær fjárheimildir sem lagðar eru til með frumvarpinu. Það er afar mikilvægt að við sem þjóð stöndum saman og veitum Grindvíkingum allan þann stuðning sem þeir þurfa á að halda á þessum erfiðu tímum. Ég set þó fyrirvara við ákveðin atriði við afgreiðslu þessa máls. Ég tel að betur þurfi að skoða lagalegan grundvöll leigufélagsins Bríetar. Það kann að vera tilefni til að breyta þeirri lagaheimild sem í dag fjallar um heimild Húsnæðis- og mannvirkjastofnunar til að reka leigufélag og í hvaða tilgangi. Öll erum við sammála um mikilvægi þess að útvega Grindvíkingum húsnæði en það þýðir ekki að við ættum að skauta fram hjá formsatriðunum. Formsatriði eru mikilvæg. Formsatriði eru sérstaklega mikilvæg hvað varðar fjármál ríkisins og þau skapa aga í allri stjórnsýslu og í fjármálum ríkisins. Þau geta lotið að hæfi og öðru slíku við gerð kaupa t.d. og líka því að við getum staðið sterk að vígi kæmi til deilna fyrir dómstólum.

Það er lítið mál að gera lagabreytingar sem veita hinu opinbera heimild til að reka leiguhúsnæði, mjög lítið mál, sem viðbragð við þeim atburðum sem hafa átt sér stað í Grindavík. Við þekkjum það öll að þingið standi saman sem eitt í þessari baráttu og myndi leggja áherslu á að klára slíkt frumvarp án tilhæfulausra tafa.

Í lögum um húsnæðismál, 4. gr., um Húsnæðis- og mannvirkjastofnun segir, með leyfi forseta:

„Helstu verkefni Húsnæðis- og mannvirkjastofnunar samkvæmt lögum þessum eru:

[…]

5. Að eiga og reka leiguhúsnæði á svæðum þar sem skortur er á leiguhúsnæði og bygging íbúða hefur verið í lágmarki eða sérstök vandkvæði eru á að fá fjármögnun á almennum markaði.“

Það er sú lagaheimild sem leigufélagið Bríet starfar samkvæmt. Það hefði verið lítið mál að breyta þessari lagaheimild og ég tel reyndar að við hefðum ekki átt að breyta henni, við hefðum átt að koma með ákvæði til bráðabirgða, sérstaklega hvað varðar Grindavík og þær aðgerðir sem við erum að fara nú í, ákvæði til bráðabirgða til að vera á sterkum lagagrundvelli í þeirri aðstoð sem hér er verið að veita fjármagn til.

Annað atriði sem ég geri athugasemdir við og ég tel mikilvægt að skoða, og ég fjallaði um það aðeins í andsvörum við hv. formann fjárlaganefndar, Stefán Vagn Stefánsson, hér rétt áðan, er varðandi aðgerðir sem þarf að fara í til að sporna gegn verðbólgu. Í ræðu hv. þingmanns og í greinargerð þá kemur fram að kaup Bríetar ásamt samdrætti í fjölda nýbygginga milli ára geti leitt til þess að leigu- og húsnæðisverð í landinu hækki verulega á næstu mánuðum.

Vissulega er búið að kalla eftir greiningu hvað þetta varðar og mikilvægt að hún komi sem allra fyrst en það eru ekki bara kaup Bríetar á 120 íbúðum núna og 80 í desember sem leiða til hækkunar á íbúðaverði og leiguverði á næstu mánuðum. Það er líka sú þörf sem skapast á markaðnum við það að Grindvíkingar þurfa að leita sér húsnæðis. Það hefur verið sagt frá því og liggur fyrir að það er þörf fyrir 1.200 íbúðir. Ríkið ætlar bara að kaupa 200 íbúðir þannig að það eru einstaklingar sem þurfa að útvega sér 1.000 íbúðir sjálfstætt. Þessi aukna þörf leiðir líka til aukinnar eftirspurnar á húsnæðismarkaði og í ljósi þess að íbúðabygging fylgir ekki þörf er mikilvægt að stuðlað verði að aukinni uppbyggingu sem fylgir aukinni eftirspurn vegna kaupa á húsnæði fyrir Grindvíkinga. Það er grundvallaratriði að við förum í aðgerðir, sérstaklega til að sporna gegn verðbólgu og þeirri þenslu sem þetta leiðir til og það kemur fram í greinargerðinni, með leyfi forseta, að:

„Með áætlaðri innkomu um 3.000 nýrra íbúða á markaði í ár býst HMS því við að uppbygging nýrra íbúða muni einungis uppfylla tæplega 60 prósent íbúðaþarfar ársins.“

60%. Við erum einungis að mæta 60% íbúðaþarfarinnar. Hvað þýðir þetta? Jú, þetta þýðir að það er framboðsskortur á húsnæði. Og hvað þýðir framboðsskortur? Jú, hann þýðir að húsnæðisverð í landinu mun hækka. Hvað þýðir það? Aukna verðbólgu. Við erum með stýrivexti sem eru 9,25% og við erum með viðfangsefni sem leiða til hækkandi verðbólgu og aukinnar eftirspurnar. Vissulega er það líka erfiðleikum bundið hér að fara að byggja húsnæði sem getur valdið þenslu og valdið verðbólgu og líklega er best að flytja inn húsnæði. Það myndi sennilega valda minnstri þenslu en þetta þarf að gera samt sem áður. Þörfin er til staðar og við þurfum að sjá til þess að verðbólga sé ekki.

Það er gríðarlega mikilvægt að við förum einhvern tíma í þessu ferli núna að beita ríkisfjármálunum gegn verðbólgunni. Fjárlög þessa árs gefa vísbendingu um að það sé ekki verið að beita ríkisfjármálunum í baráttunni gegn verðbólgunni. Þau eru algerlega hlutlaus hvað það varðar og það er einungis Seðlabankinn sem er í þeirri baráttu með hina, hvað eigum við að segja, gersamlega gölnu vexti, 9,25%. Verðbólgan er núna 6,7% og hún gæti jafnvel farið að hækka aftur, m.a. vegna ástandsins í Grindavík og ekki síður vegna ástandsins á Rauðahafi þar sem flutningsleiðir fara nú suður fyrir Afríku og verð á gámum hefur farið úr 780 dollurum eða evrum á gám upp í 3.100. Þetta mun leiða til hærra verðlags líka þannig að við erum kannski ekki að losna úr verðbólgunni enn þá þó að það séu vísbendingar til þess.

Þriðja atriðið sem ég vil nefna í ræðu minni er að þær aðgerðir sem við fjöllum um í dag eru aðeins hluti af þeim mörgu aðgerðum sem grípa þarf til vegna jarðhræringanna á Reykjanesskaga. Okkar færustu sérfræðingar bentu strax á það árið 2020 að Reykjanesskaginn væri að vakna til lífsins eftir þúsund ára svefn og að fram undan kynnu að vera miklar jarðhræringar og eldsumbrot. Það má segja að atburðir hafi farið stigvaxandi ár frá ári, allt frá fyrstu jarðskjálftahrinunni árið 2020 og eldgosi við Fagradalsfjall 2021. Þetta hefur verið stigvaxandi allan þennan tíma. Ég tel að við hefðum þurft að undirbúa okkur mun betur í ljósi þessa langa aðdraganda. Við hefðum strax átt að undirbúa viðbrögð vegna hugsanlegra skemmda á Svartsengisvirkjun og kortleggja aðgerðir sem grípa mætti til ef rýma þyrfti byggð í Grindavík.

Grindavík er rétt fyrir sunnan Bláa lónið, rétt sunnan við Svartsengi, og maður sér hraunbreiðuna hreinlega sem er fyrir norðan og þegar var vitað að það væru að hefjast eldsumbrot á þessu svæði þá var augljóst mál að Grindavík væri í hættu. Það er óásættanlegt að fólk hafi þurft að gista í tjöldum og leigja sér hótelherbergi vegna ástandsins. Þarna áttu stjórnvöld að grípa inn í betur og grípa inn fyrr.

Í gær birtist frétt í Heimildinni. Þar var viðtal við fjölskyldu sem hefur þurft að flytja búferlum sjö sinnum frá því að Grindavík var rýmd, sjö sinnum, og mun að öllum líkindum þurfa að flytja aftur innan skamms, þá í áttunda skipti. Það er óásættanlegt að ekki hafi verið lögð meiri áhersla á uppbyggingu íbúða á síðustu árum og íbúðaþörf hafi þvert á móti vaxið. Þar spila saman margir orsakavaldar, eins og ég kom inn á hér áðan, en þarna vantar sannarlega drifkraftinn frá stjórnvöldum og ég brýni ríkisstjórnina og stjórnarmeirihlutann til að taka á þessu máli núna af fullum krafti. Það er algerlega nauðsynlegt. Við vissum það strax árið 2021 að það kynni að gjósa nálægt byggð. Við áttum að vera betur undirbúin. Við höfum vitað það frá nóvember að Grindvíkingar þyrftu lausn á sínum húsnæðisvanda, bæði til skemmri og lengri tíma. Það er óásættanlegt hve margir bíða enn lausnar sinna mála. Ég tel að við höfum að vissu leyti staðið okkur vel en það verður að undirbyggja þetta betur núna og gera áætlanir lengra fram í tímann hvað þetta varðar.