fjáraukalög 2024.
Virðulegur forseti. Ég þakka hv. þingmanni kærlega fyrir sína ræðu og yfirferð um málið. Kannski áður en ég kem að því sem ég ætlaði að spyrja hv. þingmann vil ég koma að því að hann talaði um það í sinni ræðu að væntingar væru til þess að verðbólga væri á uppleið. Ég var einmitt að lesa frá Seðlabankanum ástæður og skýringar á stýrivaxtaákvörðun bankans í gærmorgun þar sem kemur fram, ef ég man rétt, að verðbólga sé á niðurleið og verðbólguvæntingar sömuleiðis séu minni og eru á niðurleið. Það sé spáð slaka í hagkerfinu á seinni hluta ársins. Það er kannski ekki alveg í takt við það sem hv. þingmaður sagði hér. En vissulega, ef ég reyni að túlka það sem hv. þingmaður var að reyna að segja; ef okkur tekst illa til gagnvart Grindavík getur það haft áhrif á verðbólguna. Það er kannski þaðan sem hann var að koma. Þar erum við sammála alveg eins og við ræddum hér áðan þegar hv. þingmaður fór í andsvör við mig eftir mína ræðu.
Það sem mig langar hins vegar að spyrja hv. þingmann að, ég misskildi það kannski, er um þessar íbúðir. Hann talaði um 200 íbúðir sem Bríet er búin að kaupa núna, reyndar er Bjarg búið að kaupa um 60 ef ég man rétt. En segjum sem svo að það séu þessar 200 íbúðir sem hv. þingmaður talaði um og hann talaði um að það vantaði 1.000 til viðbótar til að koma til móts við þá þörf sem metin er í Grindavík, sem eru um 1.200 íbúðir. Er það vilji hv. þingmanns að við hefðum fjárfest í þessum 1.200 íbúðum? Skildi ég rétt?