154. löggjafarþing — 67. fundur,  7. feb. 2024.

fjáraukalög 2024.

626. mál
[17:24]
Horfa

Eyjólfur Ármannsson (Flf) (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir andsvarið og að gefa mér tækifæri til að skýra þetta frekar. Eins og ég skil þetta, vegna þess að allir íbúar frá Grindavík hafa flutt þaðan, þá hefur skapast þörf fyrir 1.200 íbúðir í landinu fyrir Grindvíkinga. Íslenska ríkið, og Alþingi, er búið að kaupa tvisvar sinnum, 80 og svo 120, alls 200 íbúðir. Þessar 1.000, það húsnæði hafa Grindvíkingar sjálfir útvegað sér, farið á leigumarkað og annað slíkt, kannski átt íbúð fyrir og alls konar svoleiðis, bara bjargað sér sjálfir. En svo hefur ríkisvaldið greint það þannig að við þurfum að grípa inn í og hjálpa varðandi 200 íbúðir. Ég veit það ekki. Það gæti verið að við þyrftum að fara aftur og kaupa fleiri. Það kemur bara í ljós, ég veit það ekki. Þá kemur það mál bara aftur inn til okkar í þriðja sinn, að kaupa fleiri íbúðir. Ég var ekki að segja að íslenska ríkið ætti að kaupa 1.200 íbúðir heldur að heildarþörfin væri sú. Það var samhengi við það að ekki einungis kaup Bríetar gætu leitt til þess að leigu- og íbúðaverð hækkaði í landinu heldur líka heildarþörfin. Ekki 200 íbúðarkaupin heldur 1.200 íbúðarkaupin, líka kaup einstaklinganna og að þeir eru að koma inn á markaðinn. Það veldur verðbólguþrýstingi, er raunverulega sex sinnum meiri, í staðinn fyrir 200 er það 1.200, íbúðaþörfin í heild. Ég bara veit ekki hvort íslenska ríkið þarf að grípa inn í og kaupa fleiri, þetta gæti leitt til þess, ég veit það ekki, það fer eftir því hver staða íbúanna er. Við erum með þjónustumiðstöð og greiningu hvað þetta varðar.

Varðandi verðbólguna þá er ljóst að undirliggjandi verðbólga er byrjuð að lækka og það er mjög vel. En maður veit ekki hver áhrifin verða t.d. vegna flutninga frá Asíu á vörum. Það getur vel verið að þær muni hækka vegna flutningskostnaðar. Og svo er spurningin um áhrifin af þessari íbúðaþörf. Það er mjög vel að nefndin hefur kallað eftir því að gerð verði greining á áhrifum þess að eftirspurn eftir húsnæði eykst óhjákvæmilega.