fjáraukalög 2024.
Virðulegur forseti. Ég þakka hv. þm. Eyjólfi Ármannssyni sérstaklega fyrir þetta síðara andsvar og fyrir að leiðrétta þennan misskilning sem var í kollinum á mér eftir hans ræðu. En það er alveg rétt, það eru um 1.200 eignir sem þarna eru undir og ég held að það sé bara mjög mikilvægt að reyna að meta stöðuna eftir næstu aðgerðir ríkisstjórnarinnar, þessa uppkaupaleið sem menn hafa boðað. En alveg eins og ég og hv. þingmaður ræddum eftir mína ræðu þegar hann var í mínum sporum í andsvörum, við ræddum um framboðshliðina og að það væri mikilvægt að ríkisstjórnin og ríkið kæmi með einhvers konar mótvægisaðgerðir á sama tíma og menn kæmu fram með þennan pakka varðandi uppkaupin. Ég held að það sé algjört lykilatriði að menn reyni með einhverju móti að koma inn á framboðshlið markaðarins til að tryggja akkúrat að þetta gerist ekki sem hv. þingmaður fór hér yfir áðan, að verðbólga fari upp. Ég þakka hv. þingmann fyrir ræðu sína og andsvörin. Ég held að við séum nú í þessu máli ekkert rosalega langt hvor frá öðrum.