Seðlabanki Íslands.
Herra forseti. Ég mæli fyrir frumvarpi til laga um breytingu á lögum um Seðlabanka Íslands. Forsaga þessa máls er allnokkur og ég ætla að fara yfir hana hér í minni framsöguræðu. Markmið þessa frumvarps er að treysta viðnámsþrótt í greiðslumiðlunar hér á landi og þar með stuðla að fjármálastöðugleika og þjóðaröryggi. Traust og örugg greiðslumiðlun er ein undirstaða þess að hagkerfið virki sem skyldi sem og efnahagslegrar velsældar á Íslandi. Almenningur og atvinnulíf þurfa að geta treyst því að á hverjum tíma sé hægt að greiða fyrir vörur og þjónustu og það er hlutverk stjórnvalda að tryggja að ætíð séu til staðar virkar greiðsluleiðir hér á landi.
Greiðsluleiðum hér á landi má skipta gróflega í tvo flokka, annars vegar greiðslukort erlendra kortafyrirtækja og hins vegar seðla og mynt. Mjög hefur dregið úr notkun seðla og eru greiðslukort með rúmlega 90% markaðshlutdeild í greiðslum fyrir smásölu og þjónustu hér á landi. Því er um að ræða mikla samþjöppun í smágreiðslumiðlun og áhættan mikil ef sú leið rofnar. Við höfum þriðja möguleikann sem mætti kalla rafræna staðgreiðslu, þ.e. að nota þá innviði sem til staðar er í landinu fyrir millifærslur á milli reikninga, af einum reikningi beint á annan, og styrkja þá innviði þannig að þjált verði að nota millifærslur í verslun og á sölustað þjónustu. Þarna er einfalt tækifæri til að fjölga öruggum greiðsluleiðum og þar með auka viðnámsþrótt greiðslumiðlunar.
Nauðsynlegt má telja að þær greiðsluleiðir sem eru í boði séu opnar og í daglegri notkun. Annars er hætta á því að tæknin úreldist eða hæfni og geta aðila á markaði til að nýta slíka leið sé einfaldlega ekki til staðar þegar á reynir. Öðruvísi verður viðnámsþróttur ekki tryggður. Það að efla rafræna staðgreiðslu eða millifærsluleiðina fullnægir þessari kröfu. Áhættan er raunveruleg, enda höfum við nokkur nýleg dæmi þar sem rof hefur orðið í greiðslukortakerfum og við þær aðstæður hefði rafræn staðgreiðsla eða millifærsluleiðin komið sér vel.
Þetta er ekki séríslensk áskorun. Stjórnvöld og seðlabankar um heim allan hafa leitað leiða til að efla viðnámsþrótt í greiðslumiðlun, ekki síst á síðustu árum, enda staðan í alþjóðamálum ótryggara en áður auk þess sem við höfum séð gríðarlega fjölgun netárása. Við lifum á viðsjárverðum tímum hvað þetta varðar og því er mikilvægt að huga heildstætt að viðnámsþrótti greiðslumiðlunar í landinu. Þar gegnir Seðlabankinn mjög mikilvægu hlutverki en núgildandi lög um bankann þykja ekki veita nægilega skýrar reglusetningarheimildir til viðbúnaðar til að tryggja örugga og virka greiðslumiðlun. Þessu frumvarpi er ætlað að bæta úr því.
Ég nefndi hér áðan að forsaga þessa máls er töluvert löng og ætla að fara aðeins yfir hana. Það var á árinu 2019 sem Seðlabanki Íslands kom á framfæri áhyggjum við þjóðaröryggisráð vegna þess að greiðslukortaviðskipti, sem eru undirstaða langflestra smásöluviðskipta eins og ég fór hér yfir, væru svo háð erlendum aðilum og innviðum að viðnámsþróttur í greiðslumiðlun hér á landi væri óviðunandi og fjármálastöðugleika og þar með þjóðaröryggi væri ógnað. Ítrekað höfum við rætt þetta mál í þjóðaröryggisráði og ráðið hefur opinberlega tekið undir þessar áhyggjur Seðlabankans. Frá árinu 2019 hafa ógnir við fjármálastöðugleika og þjóðaröryggi og áhættan sem felst í netárásum sem beinast að rafrænni greiðslumiðlun síst minnkað og aukin ógn stafar nú að fjarskiptainnviðum, m.a. vegna stríðsástands í Evrópu.
Á þessum tíma hefur Seðlabankinn um skeið verið á vettvangi framtíðarvettvangs, samráðsvettvangs um þróun fjármálainnviða, að vinna að því í samstarfi við innlánsstofnanir að skapa skilyrði fyrir innlenda smágreiðslumiðlun með það að markmiði að styrkja viðnámsþrótt greiðslumiðlunar. Til umræðu hefur verið að koma á fót grunninnviðum en með því er átt við innviði sem gera það kleift að bjóða form rauntímagreiðslumiðlunar í verslun og þjónustu þar sem greiðslur fara á milli tveggja bankareikninga og byggist á núverandi innviðum fyrir millifærslur. Slíkir grunninnviðir væru tæknilausn fyrir greiðslur af bankareikningum í íslenskum krónum sem miðlaði upplýsingum milli greiðanda, seljanda og banka með skilvirkum og einföldum hætti. Viðbótarfjárfestingin er hófleg, enda myndu vera nýttir að fullu þeir greiðslu- og millibankainnviðir sem nú þegar eru til staðar í landinu. Markmiðið er því að nýta þau sameiginlegu kerfi og fjárfestingar sem við eigum nú þegar í innlendri greiðslumiðlun, sem er sem sagt millibankagreiðslukerfi Seðlabankans sem er grundvöllur allrar greiðslumiðlunar í landinu og innlánskerfi innlánsstofnana sem nýlega hafa verið endurnýjuð, og tengja þau grunninnviðunum. Um yrði að ræða opna innviði sem allir sem uppfylla tiltekin skilyrði og þar með hafa ákveðin starfsleyfi gætu fengið aðgang að og gæti nýst þeim sem nú þegar stunda greiðslumiðlun en líka auðveldað nýjum aðilum að koma inn á markaðinn. Með því að nýta þær fjárfestingar í greiðslukerfum sem þegar hefur verið lagt í yrði hægt að koma á fót slíkum grunninnviðum án mikils kostnaðar við hönnun eða rekstur þeirra. Með þeim væri auðveldað að nota millifærslur í viðskiptum innan lands sem gæti dregið úr kostnaði í greiðslumiðlun og það er auðvitað líka hagur bæði neytenda og seljenda vöru og þjónustu.
Sú vinna sem hefur farið fram á vegum Seðlabankans um að koma á fót slíkum grunninnviðum er ekki lokið og endanleg niðurstaða þessa samtals liggur ekki fyrir. En þó að samstarfið takist er áfram rík ástæða til að styrkja reglusetningarheimildir Seðlabankans þannig að bankinn geti sett skýrar leikreglur um hina nýju innviði en einnig brugðist við ófyrirséðum aðstæðum sem geta ógnað fjármálastöðugleika þegar á reynir, m.a. með því að setja reglur sem efla viðnámsþrótt og öryggi í greiðslumiðlun.
Þá ætla ég að fara yfir meginefni frumvarpsins. Í frumvarpinu er lagt til að reglusetningarheimildir Seðlabanka Íslands á sviði greiðslumiðlunar og rekstraröryggis fjármálainnviða verði skýrðar og styrktar. Í fyrsta lagi er lagt til að bankanum verði veitt sérstök heimild til að setja reglur sem auka viðnámsþrótt, öryggi og virkni í greiðslumiðlun hér á landi. Í því felst að bankinn geti kveðið á um ráðstafanir til að tryggja rekstraröryggi í greiðslumiðlun sem og fyrirkomulag innviða innlendra greiðslumiðlunar, til að mynda fyrir innlenda rauntímagreiðslumiðlun á milli bankareikninga. Á grundvelli heimildarinnar getur bankinn kveðið á um tilhögun greiðslufyrirmæla á sameiginlegum grunninnviðum, sannvottun, uppgjör greiðslna, gjaldtöku og um aðgang að slíkum innviðum. Með slíkum reglum má einnig kveða á um skyldu þeirra sem bjóða upp á bankareikninga í íslenskum krónum, þ.e. þeirra lánastofnana sem teljast til viðskiptabanka og sparisjóða og eftir atvikum útibúa erlendra innlánsstofnana hér á landi til taka þátt í þessum grunninnviðum.
Heimild Seðlabankans til reglusetningar samkvæmt frumvarpinu myndi enn fremur nýtast til að fyrirbyggja og bregðast við hvers konar ófyrirséðum aðstæðum í greiðslumiðlun sem kunna að hafa áhrif á viðnámsþrótt, öryggi og virkni í greiðslumiðlun hér á landi. Þannig gæti þessi heimild nýst til að skilgreina sameiginlegar rekstraröryggiskröfur til að tryggja viðnámsþrótt í greiðslumiðlun, til að mynda hvað varðar seðla og mynt, tengingar við fjarskiptainnviði og upplýsingaöryggi og varnir gegn netógnum. Jafnframt kveður frumvarpið á um að Seðlabankinn geti beitt þá sem ekki fara eftir reglum settum á þessum grundvelli þvingunarúrræði í formi dagsekta.
Markmið frumvarpsins, eins og ég kom hér að áður, er fyrst og fremst að treysta getu stjórnvalda til að standa vörð um virka og örugga greiðslumiðlun í landinu sem eru mikilvæg almannagæði í því samfélagi sem við búum í dag. Verði frumvarpið að lögum fær Seðlabankinn heimild til reglusetningar sem treystir getu bankans til að auka áfallaþol innlendrar greiðslumiðlun. Án lagasetningar er talið að reglusetningarheimildir Seðlabankans séu ekki nægilega skýrar til að gera þær ráðstafanir sem nauðsynlegar eru taldar, ekki bara af þjóðaröryggisráði sem ég nefndi hér áðan heldur einnig fjármálastöðugleikanefnd til að auka viðnámsþrótt innlendrar greiðslumiðlunar og stuðla þannig að virkri og öruggri greiðslumiðlun í landinu. Þetta er meginmarkmiðið, þ.e. öryggissjónarmiðin, og það er löngu tímabært að tekin verði afstaða til þeirra sjónarmiða sem fram komu á sínum tíma í því áliti sem Seðlabankinn sendi þjóðaröryggisráði og við höfum rætt nokkrum sinnum í þessum sal.
Ég vek líka athygli á því að með setningu þessarar heimildar, eins og lagt er til í frumvarpinu, felast líka tækifæri til framþróunar í greiðslumiðlun með nýjum greiðslumöguleikum sem geta dregið úr kostnaði og aukið ábata bæði söluaðila og neytenda. Þannig getur þessi reglusetning leitt til breytinga á greiðslumiðlun á markaði sem eru jákvæðar bæði fyrir almenning í landinu og rekstraraðila. Slík reglusetning myndi fela í sér uppsetningu á slíkum grunninnviðum eins og ég hef fjallað um. Þannig yrðu tækifæri fyrir aðila í greiðslumiðlun að bjóða upp á nýjar greiðsluleiðir. Þetta gæti aukið samkeppni á markaði og haft í för með sér að notkun annarra og dýrari greiðsluleiða myndi dragast saman. En að sjálfsögðu mun almenningur og fyrirtæki áfram eiga valið og slíkt mun leiða til meiri samkeppni og mögulega lægra verðs fyrir stafrænar greiðslur.
Eins og fram kemur í greinargerð með frumvarpinu var haft hefðbundið samráð um efnistök þess. Áformin voru kynnt til umsagnar í samráðsgátt stjórnvalda í sumar og bárust sex umsagnir. Þá voru drög að frumvarpinu kynnt til umsagnar í samráðsgátt í lok nóvember. Þá bárust einnig sex umsagnir. Hv. þingmenn geta kynnt sér efni einstakra umsagna í samráðsgáttinni. Ég vil geta þess sérstaklega að umsagnir hagsmunasamtaka neytenda og þeirra sem gætu haft í hyggju að bjóða upp á nýjar lausnir í greiðslumiðlun voru jákvæðar í garð frumvarpsins en sú gagnrýni sem kom frá öðrum hagsmunaaðilum á fjármálamarkaði mætti segja að hafi snúið annars vegar að áhyggjum af auknum valdheimildum Seðlabanka og hins vegar hver áhrif reglusetningar gætu verið á greiðslumarkaði.
Þessari gagnrýni er svarað með ítarlegum hætti í frumvarpinu. Hvað þá fyrri varðar er þó ítrekað að það er hlutverk Seðlabankans samkvæmt lögum að stuðla að fjármálastöðugleika og traustri og öruggri fjármálastarfsemi og þar með að stuðla að virku og öruggu fjármálakerfi og greiðslumiðlun í landinu. Skýrari reglusetningarheimildir sem frumvarpið kveður á um beinast að fjármálamarkaði og eru í fullu samræmi við hlutverk bankans. Ekki er gengið lengra en nauðsynlegt er til þess að bankinn geti með fullnægjandi hætti sinnt lögbundnu hlutverki sínu. Reglusetningin, á grundvelli skýrari reglusetningarheimilda, mun geta haft áhrif á markaðinn, eins og ég hef nú aðallega rætt hér í minni framsögu, þ.e. þau áhrif að styrkja viðnámsþrótt markaðarins og rekstraröryggi. Hvað varðar þá gagnrýni að aðrar leiðir en fyrirhugaðir grunninnviðir hafi ekki verið kannaðar til að bregðast við þeirri áhættu gagnvart þjóðaröryggi sem núverandi staða á greiðslumarkaði hefur er vísað til þess sem fram kemur í frumvarpinu; að lagt hefur verið mat á þær lausnir sem eru fyrir hendi komi til þess að greiðslukort virki ekki og þær hafa verið taldar ófullnægjandi. Þá eru aðrir kostir til að bregðast við áhættunni eins og ný innlend greiðslukortaskemu eða sofandi varalausnir bæði kostnaðarsamari en þeir innviðir sem fyrirhugaðir eru og ekki til þess fallnir að draga úr kostnaði í greiðslumiðlun eða stuðla að samkeppni og nýsköpun á greiðslumarkaði.
Ég vil nefna það hér að þetta mál hefur verið rætt í fjölda ára án þess að markaðurinn hafi leyst vandamálið. Ég tel einsýnt að Seðlabankinn þurfi að taka forystu í þessu verkefni, leiða saman viðeigandi hagaðila og til þess þarf hann skýra reglusetningarheimild sem er hægt að beita ef þörf krefur. Þá er líka mikilvægt í ljósi þeirra aðvarana sem við höfum fengið, að þessi heimild sé tryggð þannig að Seðlabankinn geti brugðist við aukinni áhættu og ógnum sem geta haft áhrif á fjármálastöðugleika hverju sinni í samræmi við sitt lögbundna hlutverk.
Herra forseti. Ég hef hér gert grein fyrir meginatriðum frumvarpsins. Ég mæli fyrir því í ljósi þess að Seðlabankinn heyrir að sjálfsögðu undir forsætisráðuneyti en ekki síður í því ljósi að fyrst og fremst er hér um þjóðaröryggismál að ræða sem ég tel um leið geta orðið mikið hagsmunamál fyrir almenning og atvinnulíf í landinu. Ég vona svo sannarlega að þessar tillögur njóti velvildar í öllum þingflokkum.
Ég legg til að frumvarpinu verði að lokinni þessari 1. umræðu vísað til hv. efnahags- og viðskiptanefndar.