Seðlabanki Íslands.
Herra forseti. Ég þakka hv. þm. Eyjólfi Ármannssyni andsvarið. Greinargerðin er, eins og hv. þingmaður bendir á, efnismikil en það liggur sem sagt fyrir að sú leið sem hér er sett fram telst vera að fullu samrýmanleg PSD2-löggjöfinni sem hv. þingmaður vitnar til. Leiðin sem hér er verið að skoða byggir á greiðslubeiðnum sem myndu nýta núverandi innviði bankakerfisins til að framkvæma greiðslu eða millifærslu þannig að í raun ætti þessi leið að auka samkeppni. Seðlabankinn kemur á fót sameiginlegum innviðum, eins og ég fór hér yfir áðan, einkaaðilar geta tengst þessum sameiginlegu innviðum, þessum teinum, og nýtt þá þannig að til ætti að verða frekari samkeppni á greiðslumarkaði. Það eykur öryggi hins vegar að hafa grunninnviðina undir stjórn Seðlabankans. Það eykur líka samkeppni á greiðslumarkaði sem ætti að skila sér í betri kjörum fyrir neytendur en það var í raun og veru eitthvað sem hreinlega kom fram þegar við fórum að rýna þetta mál vegna þjóðaröryggissjónarmiða. Það er þannig nú að rúmlega 90% innlendrar smágreiðslumiðlunar fara fram með greiðslukortum, debet- og kreditkortum, sem nýta erlenda innviði. Heimildagjöf og jöfnun innlendra debetkorta hefur nær alfarið færst úr landi og 99% debetkortafærslna fara um innviði í eigu erlendra fyrirtækja. Þessi staða var önnur í hruninu ef við rifjum það upp. Þannig að ég held að hér sé mjög mikilvægt að grípa inn í. En við erum að sjálfsögðu búin að rýna PSD2-löggjöfina og teljum þessa leið af fullu samrýmanlega henni.