Seðlabanki Íslands.
Virðulegi forseti. Ég þakka hæstv. forsætisráðherra fyrir svarið. Hérna er um mjög mikilvægt atriði að ræða. Vissulega þekkjum við söguna úr hruninu, þetta rétt slapp, alþjóðlegu kortafyrirtækin heimiluðu áfram greiðslumiðlun. Það er vissulega öryggisatriði og þjóðaröryggismál að þessir innviðir, þessir teinar séu í lagi. Eins og ég skil þessi mál þá er það þannig að ef bankarnir búa til þessa teina þá gæti komið einokun. Þessar greiðsluþjónustumiðlarnir geta búið til þessa teina, það eru þær sem heimila þetta. Einstaklingurinn gefur greiðsluþjónustunni aðgang að sínum bankareikningi. Hann fer út í búð og notar hana. Á þessum teinum er hægt að bjóða alls konar þjónustu þannig að kúnninn verður eiginlega varan, eins og með Google og Facebook, við erum varan. Þarna er hægt að bjóða ýmis konar þjónustu og þar eru tekjumöguleikar fyrir fyrirtækin. En ef bankarnir eiga þessa teina þá er eiginlega ekki verið að breyta neinu á íslenskum fjármálamarkaði. Við erum enn þá í þessu samkeppnisleysi með þessa þrjá banka sem öllu ráða hér. En það er svo mikilvægt að geta gefið möguleika fyrir sprotafyrirtæki, lítil fyrirtæki sem koma með öpp, koma með greiðslumiðlunarþjónustu, að þau fái að njóta sín. Þetta er gríðarlegt samkeppnisatriði líka að reglurnar stuðli að samkeppni, stuðli að lágum þröskuldi inn á markaðinn og að Seðlabankinn tryggi öryggið. Hann getur gert það með afriti af þessum teinum alltaf. Þannig að eignarhaldið þarf ekkert að vera ríkisins og á ekki að vera ríkisins en það þarf að tryggja greiðsluöryggið þannig að ef eitthvað gerist þá sé Seðlabankinn til staðar alltaf. Þessar reglur um rekstraröryggi eru því gríðarlega mikilvægar. En það sem ég hjó í hérna í greinargerðinni á bls. 31, ég ítreka það, er að þar er átt við eignarhald, þar sem talað er um hvers efnis þessar reglur geta verið, að með fyrirkomulagi innviða innlendrar greiðslumiðlunar sé t.d. átt við eignarhald. (Forseti hringir.) Ætlar ríkið að fara að skipta sér af eignarhaldi á þessum teinum, á þessari smágreiðslumiðlun og þessum mikilvægu innviðum? Er það ríkisins að ákveða það?