154. löggjafarþing — 67. fundur,  7. feb. 2024.

Seðlabanki Íslands.

662. mál
[18:03]
Horfa

forsætisráðherra (Katrín Jakobsdóttir) (Vg) (andsvar):

Herra forseti. Ég þakka hv. þingmanni aftur fyrir andsvarið. Í stuttu máli er ekki nákvæmlega búið að ákveða hvernig þetta geti þróast. Eins og ég nefndi í máli mínu áðan þá stendur yfir samtal milli Seðlabanka og fjármálafyrirtækja. (Gripið fram í.) Það þykir hins vegar vera nauðsynlegt að bankinn hafi þessa heimild til að setja reglurnar. Ein leið gæti verið einhvers konar samfélag sem væri, með aðkomu Seðlabanka og bankanna, til að tryggja þetta. En stóra málið er að við erum í raun og veru þegar búin að fjárfesta í þessum innviðum, bæði með millibankakerfum Seðlabankans og innlánskerfum banka og sparisjóða. En það sem vantar upp á eru þessir innviðir, þessi stöðlun skilaboða, þetta er auðvitað frekar tæknilegt mál, þannig að það sé hægt að samþykkja með öruggum hætti að millifærsla eigi að eiga sér stað. Það er ekki mikill viðbótarkostnaður sem felst í því. Þannig erum við að segja að þessir innviðir tryggi öryggi þess að greiðslumiðlun geti haldið áfram. En þetta veitir líka tækifæri fyrir nýja aðila til að koma inn á þennan markað, fyrir aukna samkeppni og til að lækka verð. Við sjáum það til að mynda í dag að það þarf að auka gagnsæi kostnaðar í smágreiðslumiðlun. Ég held að það blasi við öllum. Því er hreinlega ábótavant hér á landi. En ef slíkur kostnaður lækkar ætti það að vera til góða, bæði fyrir almenning og atvinnulíf, fyrir utan að þetta gæti aukið nýsköpun í raun og veru í smágreiðslumiðlun. Við erum auðvitað búin að gefa okkur töluverðan tíma í að kafa ofan í þetta mál, það er búið að eiga sér stað langt samtal milli Seðlabankans og fjármálafyrirtækja. En við metum það þannig að þessi heimild sé nauðsynleg til að geta í raun botnað það samtal. (Forseti hringir.) Æskilegast væri að þetta væri einhvers konar samstarfsverkefni.