154. löggjafarþing — 67. fundur, 7. feb. 2024.
orlofshúsnæði örorkulífeyrisþega.
90. mál
Herra forseti. Ég er svo sem ekki með andsvar en ég vil þakka hv. þm. Steinunni Þóru Árnadóttur fyrir þetta góða mál og hjartahlýju. Ég tek heils hugar undir það að við öryrkjar, hvað þá efnaminni og þeir sem eru fatlaðir og hafa ekki aðgengi að venjulegum orlofshúsum — þetta er fallegt mál fyrir þá. Takk fyrir það, hv. þm. Steinunn Þóra Árnadóttir, þú átt stuðning Flokks fólksins vísan hvað málið þitt varðar. Áfram veginn!