tilhögun þingfundar.
Forseti vill geta þess að á eftir óundirbúnum fyrirspurnum verða atkvæðagreiðslur um skýrslubeiðni og fjárauka eftir 2. umræðu. Eftir það er horft til þess að hafa atkvæðagreiðslur um 4. og 5. dagskrármál. Í beinu framhaldi verður síðan settur nýr fundur sem hefst á afbrigðum og atkvæðagreiðslum um frumvarp til fjáraukalaga eftir 3. umræðu. Eftir atkvæðagreiðslurnar verður tekið til við að mæla fyrir þingmannamálum og fjármála- og efnahagsráðherra mun síðan mæla fyrir tímabundnum rekstrarstuðningi um eða fljótlega eftir hádegi. Eftir það verður haldið áfram umræðum um þingmannamálin.